Carragher um Liverpool: Varnarleikurinn stórt vandamál Anton Ingi Leifsson skrifar 21. ágúst 2016 12:30 Carragher segir að sínir menn þurfi að styrkja varnarleikinn. vísir/getty
Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool til margra ára og nú spekingur á Sky Sports, segir að hausverkur Liverpool-liðsins sé ennþá varnarleikur liðsins. Liverpool hefur fengið fimm mörk á sig í fyrstu tveimur leikjum liðsins, en Bítlaborgarliðið tapaði 2-0 fyrir Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í gær á Turf Moor. „Varnarleikurinn er stórt vandamál. Þetta var stórt vandamál undir stjórn Brendan Rodgers og það lítur út fyrir að það hafi ekki verið lagfært,” sagði Carragher í leikslok. „Klopp hafði sumarið núna og styrkti liðin, en mestur peningurinn fór á hinn enda vallarins. Ekki gleyma því að Liverpool fékk á sig þrjú mörk um síðustu helgi og þeir voru aftur slakir varnarlega núna.” Christian Benteke var seldur fyrir rúmar 30 milljónir punda, samkvæmt heimildum, og telur Carragher að nýta þurfi þann pening í að kaupa varnarmenn áður en glugginn lokar. „Henderson er ekki varnarsinnaður miðjumaður og Emre Can er eini leikmaðurinn í hópnum sem getur spilað þar því Lucas er uppfyllingarefni.” „Þú getur talað um vinstri bakvörð því James Milner spilaði þar í gær. Hvort sem þeir fara á markaðinn með Benteke peninginn áður en glugginn lokar verður að koma í ljós,” sagði Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Rekin úr Ólympíuþorpinu í París en selur nú áskriftir á OnlyFans Sport Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Enski boltinn Stefnir á endurkomu á næstu vikum: „Mæti með tvö glæný hné“ Körfubolti Tuchel búinn að skrifa undir og risastór bónus í boði Sport „Stór partur af mér sem persónu“ Handbolti Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll Handbolti Segir Mbappé steinhissa og aldrei án vitna Fótbolti „Við vorum bara niðurlægðir“ Handbolti Gripinn þegar hann hljóp að hundfúlum Ronaldo Fótbolti „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Sjá meira