Enski boltinn

West Ham spilar fyrsta úrvalsdeildarleikinn á nýjum leikvangi

Tveir leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag, en David Moyes stýrir þá Sunderland í sínum fyrsta leik á heimavelli.

Sunderland mætir Middlesbrough í fyrri leik dagsins í enska boltanum, en tveir leikir eru á dagskrá í dag og verða þeir að sjálfsögðu báðir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.

Middlesbrough eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, en þeir náðu í jafntefli í fyrstu umferðinni gegn Stoke. Sunderland tapaði fyrir Manchester City á dramatískan hátt á Etihad-leikvanginum.

West Ham spilar sinn fyrsta úrvalsdeildarleik á London-leikvanginum sem liðið var að skipta yfir á, en þeir hafa kvatt Upton Park. Þeir mæta Bournemouth í dag.

Bæði lið töpuðu sínum fyrstu leikjum; Chelsea vann sigur á West Ham 2-1, en Bournemouth lá gegn Manchester United 3-1.

Nánari upphitun má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×