Innlent

Seðlabankinn fellir niður mál gegn Kaldbaki

Birgir Olgeirsson skrifar
Stjórnendur Samherja vonast til að menn verði látnir axla ábyrgð vegna málsins, en hér má sjá Þorsteinn Má Baldvinsson, forstjóra Samherja.
Stjórnendur Samherja vonast til að menn verði látnir axla ábyrgð vegna málsins, en hér má sjá Þorsteinn Má Baldvinsson, forstjóra Samherja. Vísir/Auðunn
Seðlabanki Íslands hefur fellt niður mál á hendur Kaldbaki ehf., dótturfélagi Samherja, eftir tæplega 60 mánaða rannsókn. Frá þessu greina stjórnendur Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján V. Vilhelmsson, í bréfi til starfsmanna fyrirtækisins.

Í bréfinu segja þeir Seðlabankann loksins hafa viðurkennt að ekkert hafi verið hæft í ásökunum á hendur Kaldbaki en málið varðaði meðal annars tvær bankafærslur, en þar af var önnur færslan upp á 1.500 norskar krónur, eða sem nemur 19.700 íslenskum krónum.

Segja Þorsteinn og Kristján að með þessu hafi Seðlabankinn loksins lokið málum gegn Samherja og tengdum félögum.

„Eftir stendur að fyrir héraðsdómi Reykjavíkur er nú rekið ógildingarmál vegna óréttmætrar sektar sem Seðlabankinn lagði á Samherja hf. í september á þessu ári. Erum við bjartsýn á að fullnaðarsigur fáist einnig í því máli,“ segja þeir Þorsteinn og Kristján í bréfinu.

Þeir segja að þó svo að þessi niðurstaða hafi verið þeim löngu ljós þá skyggir tíminn og sú leið sem Seðlabankinn fór á það.

„Þá samræmist það illa ítrekuðum yfirlýsingum bankans um að þar á bæ sé starfað „samkvæmt lagaskyldu“ eða „vönduðum stjórnsýsluháttum“,“ segja Þorsteinn og Kristján í bréfinu.

„Þó við höfum alla tíð unnið eftir bestu vitund í samræmi við lög og reglur hefur það reynt á okkur öll að verjast þeirri ósvífni og óréttlæti sem Seðlabankinn hefur beitt félagið og starfsfólk,“ segja þeir og taka fram að það sé mikil refsing fólgin í því þegar upplýsingar um tilhæfulausa húsleit eru sendar út um allan heim.

„Og hefur sú aðgerð Seðlabankans ekki verið án afleiðinga fyrir Samherja. Þá er það svo að húsleit sem slík er annað og meira en „ekki neitt neitt“ eins og seðlabankastjóri hefur sagt. Húsleit er mikið áfall fyrir þá sem upplifa slíkt. Þessi orð seðlabankastjóra 16. nóvember sl. eru dæmigerð um dómgreindarleysið sem stjórnendur Seðlabankans hafa sýnt af sér í þessu máli. Í þessu sambandi er rétt að hafa einnig í huga þann fjölda einstaklinga sem Seðlabankinn hefur kært til lögreglu í gegnum árin án þess að slíkt hafi leitt til sakfellingar.“

Þeir vonast til þess að menn verði látnir axla ábyrgð á tilhæfulausum og afar kostnaðarsömum aðgerðum undanfarinna ára og að breytingar verði gerðar á stjórnsýslunni þannig að svona lagað geti ekki endurtekið sig. „Hvorki gagnvart okkur eða öðrum. Við skulum berjast fyrir því.“


Tengdar fréttir

Þorsteinn Már kærir starfsfólk Seðlabankans

Forstjóri Samherja, hefur kært þau Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóra, og Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, fyrir meint brot gegn sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×