Skoðun

Þingvallavegur

Bjarki Bjarnason skrifar
Á undanförnum misserum hafa Vegagerðin og Mosfellsbær unnið að nýju deiliskipulagi fyrir Þingvallaveg þar sem hann liggur um Mosfellsdal. Verkefnið hefur verið unnið í góðri samvinnu þessara aðila og fulltrúi íbúasamtakanna í Mosfellsdal hefur komið að þeirri vinnu. Niðurstöður liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er lagt til að lögð verði tvö ný hringtorg í Dalnum, undirgöng komi á móts við Laxnes, vegurinn verði breikkaður og fleira gert til að bæta umferðaröryggi.

Gamli Þingvallavegurinn

Fyrir skemmstu ritaði Guðný Halldórsdóttir, íbúi í Mosfellsdal, tvær greinar í Fréttablaðið um vegamál og setti fram sjónarmið sín sem ganga í aðra átt en rakið er hér að framan. Hún er lítið hrifin af vegabótum í dalnum en leggur til að nýr vegur verði lagður þvert yfir Mosfellsheiði; bendir hún á að þar sé til staðar gamall vegur sem hægt væri að nýta sem vegstæði fyrir þann nýja.

Hér er um að ræða veg sem gengur undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn en hann var lagður frá Geithálsi austur að Almannagjá á árunum 1890-1896 undir verkstjórn Árna Zakaríassonar og Einars Finnssonar. Vegurinn var því ekki byggður af Guðjóni Helgasyni snemma á 20. öld, líkt og Guðný segir í blaðagrein sinni, þótt Guðjón hafi vissulega unnið mikið að vegagerð á Mosfellsheiði eftir að hann flutti að Laxnesi árið 1905.

Gamli Þingvallavegurinn var mikið framfaraspor á sínum tíma, hann var byggður á hestvagnaöld en nýttist einnig eftir að tímar bílsins runnu upp. Vegurinn var þó aðeins notaður í fáeina áratugi sem aðalleið til Þingvalla því ráðist var í vegagerð norðar á heiðinni fyrir Alþingishátíðina árið 1930. Gamli Þingvallavegurinn var þá fljótlega aflagður og hefur verið spillt til beggja enda en á háheiðinni er hann mjög heillegur á löngum kafla, þar er að finna ýmsar fornminjar, meðal annars hleðslur, vörður, grjóthlaðin ræsi og brýr.

Kjarni málsins

Það er vel þess virði að taka til skoðunar hugmyndir um nýjan Þingvallaveg á nýjum slóðum. En að minni hyggju er það þó afleit hugmynd að leggja hann ofan á Gamla Þingvallaveginn, sem er einskis nýtur sem vegstæði fyrir nýjan veg, en um leið yrðu merkar menningarminjar eyðilagðar; skynsamlegra væri að friðlýsa þann ágæta veg.

Í þessari umræðu er kjarni málsins sá að tillögur um vegabætur í Mosfellsdal eru efst á baugi um þessar mundir. Skipulags- og hönnunarvinna verkefnisins er komin á lokastig og mun brátt verða auglýst opinberlega. Þá gefst öllum kostur á að koma með ábendingar og leggja fram athugasemdir sínar um fyrirhugaðar framkvæmdir.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×