Sir Alex opnar sig um hárþurrkuna: „Ég stjórnaði ekki með ótta“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2016 08:30 Leikmenn og dómarar fengu veðurfréttirnar beint í grillið í 27 ár. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segist ekki hafa stýrt hlutunum á Old Trafford með ótta þau 27 ár sem hann var við stjórnvölinn hjá félaginu. Þá segir hann sögurnar af hinni frægu hárþurrku stórlega ýktar. Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, segir í ævisögu sinni að það sé ekkert verra en að fá hárþurrkuna frá Sir Alex. Það er þegar Skotinn lét menn heyra það af stuttu færi í búningsklefanum eða á æfingasvæðinu. Ferguson var spurður út í hárþurrkuna á viðskiptaráðstefnu í Mílanó þar sem Skotinn sagðist alltaf hafa haft það að markmiði að fá eitthvað jákvætt út úr leikmönnum sínum. „Hárþurrkan er orðin mikil goðsögn. Ég notaði hana svona sex sinnum á 27 árum og leikmennirnir munu votta það. Það sem mér fannst verst var ef leikmennirnir svöruðu mér. Þá gekk ég að þeim. Það var mitt vandamál,“ segir Ferguson. „Jock Stein [Skoskur leikmaður og síðar þjálfari] sagði mér alltaf að bíða með að tala við leikmennina þar til á mánudegi eftir leik. Ég gat aldrei beðið til mánudags þannig á laugardegi, beint eftir leik, sagði ég öllum nákvæmlega hvað mér fannst. Mér fannst við eiga að vinna alla leiki miðað við vinnuna sem við lögðum í þetta.“ „Ég sagði þeim sannleikann og sannleikurinn virkar. Allir leikmennirnir skildu þetta og enginn var ósáttur við mig. Daginn eftir var þetta gleymt og grafið og ég var tilbúinn til að vinna leiki aftur. Ég stjórnaði aldrei með ótta.“ „Nefnið Manchester United lið sem spilaði hrætt. Mitt starf var að fá bestu svörin út úr liðinu og fá leikmennina til að tjá sig á vellinum og njóta þess að spila fyrir félagið,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira