Skoðun

Aftur um þennan andsk?… flugvöll

Jón Hjaltason skrifar
Mér þykir leitt að hafa meitt Samfylkingarmenn norðan heiða með getgátum um að þeim væri nokk sama þótt flugvöllurinn hyrfi úr Vatnsmýri. En það þyrmdi yfir mig við lestur kosningapésa er hrundu inn um bréfalúguna hjá mér og merktir voru Samfylkingunni. Þar var hamrað á mikilvægi samgangna en ég sá hvergi minnst á Reykjavíkurflugvöll. Rifjaðist þá upp fyrir mér hástemmd orðræða núverandi oddvita Samfylkingar í Norðausturkjördæmi (og raunar Samfylkingar allrar) þar sem hann lýsti því yfir með miklum þunga að okkur væri nær að láta flugvöllinn eftir í þágu borgarskipulags Reykjavíkur. Síðan eru allnokkur ár, skal ég fúslega viðurkenna, svo kannski hefur hann skipt um skoðun sem er vel.

Annað sem kom illa við mig í flugvallarumræðunni er gamla klisjan um að Reykjavíkurflugvöllur verði þar sem hann er uns fundin er betri lausn.

Ein lausnin er að miðstöð innanlandsflugs færist til Keflavíkur með fyrirsjáanlegum og ófyrirsjáanlegum afleiðingum en líkast til flestum vondum sem ég fjölyrði ekki um.

Önnur er að byggja flugvöll í nágrenni Reykjavíkur sem ég heyrði á dögunum að myndi kosta 100 milljarða. Sláum af og segjum að nýr flugvöllur kosti „aðeins“ 50 milljarða. Af hverju þorir enginn stjórnmálaflokkur að taka af skarið og segja það sem blasir við: Þetta kemur ekki til greina. Nei, þess í stað er spanderað milljónum og milljónatugum í leit að vænlegu flugvallarstæði.

Tala út og suður

Samfylkingin hefur tekið þátt í þessum sorglega skrípaleik og að mínu mati farið verr út úr honum en aðrir flokkar eða hverjum skal trúa þegar oddvitar hennar tala tungum tveim og vilja bæði rústa flugvöllinn í Vatnsmýri ekki síðar en 2022 en jafnframt halda í hann uns „betri lausn er fundin“. Höfum hugfast að uppbygging nýs flugvallar verður að hefjast innan fjögurra ára ef hann á að verða til reiðu árið 2022 og dugar þó ef til vill ekki til.

Ég skal fúslega viðurkenna að ég ætlast til þess að Samfylkingarmenn standi skör hærra en aðrir pólitíkusar. Flokkurinn hefur átt í vök að verjast síðan hann lofaði skjaldborg um heimilin en almenningi fannst, með réttu eða röngu, að Jóhanna aðhefðist lítt eða ekki heldur biði paradísarheimtar ESB. Síðan þá hefur Samfylkingunni einfaldlega mistekist að vinna traust almennings á nýjan leik og er nú í svipaðri stöðu og kona sem keppir um vegtyllur í karlaheimi, hún þarf að vera helmingi hæfileikaríkari en karlinn til að bera hærri hlut. Á þessu hefur Samfylkingin ekki kveikt. Um það er flugvöllurinn í Vatnsmýri kannski eitt besta dæmið. Þar tala flokksmenn út og suður og kveikja grun um græsku í stað þess að taka af öll tvímæli.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×