Enski boltinn

Lacazette enn til í að fara frá Lyon

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lacazette fagnar með Lyon.
Lacazette fagnar með Lyon. vísir/getty
Framherjinn sem Arsenal var á eftir í sumar, Alexandre Lacazette, skoraði þrennu um helgina fyrir lið sitt, Lyon.

Lyon hafnaði í síðasta mánuði tilboði í leikmanninn frá Arsenal sem sagt var vera upp á 30 milljónir punda.

„Ef það koma tilboð sem er ekki hægt að hafna þá hefði ég ekkert á móti því,“ sagði Lacazette eftir að hafa skorað þrennuna gegn Nancy en bætti þó við að hann hefði ekkert á móti því að vera áfram hjá Lyon.

Arsenal greiddi 30 milljónir punda fyrir Granit Xhaka í sumar en það eru einu stór kaup félagsins það sem er af þessum félagaskiptaglugga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×