13:30 Birgir Örn Guðjónsson skrifar 22. nóvember 2016 00:00 Grunnskólakennarar eru í kjarabaráttu. Það eru að vísu svo gamlar og endurteknar fréttir að það er næstum því hlægilegt. Heilu kynslóðirnar þekkja ekki annan veruleika en þann þar sem kennarar eru í verkföllum og í baráttu fyrir bættum kjörum. Það er ekkert skrýtið að kennararnir sjálfir séu orðnir rétt rúmlega langþreyttir og margir að gefast upp. Í mótmælaskyni ætla grunnskólakennarar að ganga út úr skólunum klukkan 13:30 í dag. Mér finnst eiginlega stór furðulegt að þeir ætli að snúa aftur til vinnu á morgun. Konan mín er grunnskólakennari. Ég veit líka að hún er vinsæll og góður kennari. Ég verð samt að hryggja nemendur hennar og foreldra þeirra með því að ég hef hvatt hana til að hætta. Ég hef hvatt hana til að finna sér starf þar sem hún er metin að verðleikum. Þegar öllu er á botninn hvolft er kennarastarfið nefnilega bara vinna. Það er ekki hægt að krefjast þess að kennarar fórni hæfileikum sínum og fjárhagslegri framtíð á altari hugsjónarinnar. Það er pottþétt oft skemmtilegt og gefandi að vera kennari en það er líka ótrúlega slítandi og þreytandi. Og það sem mestu skiptir, það fylgir því gífurleg ábyrgð að vera grunnskólakennari. Það skiptir okkur foreldra óendanlega miklu máli að þeir kennarar sem sjá um menntun barnanna okkar sinni sínu starfi vel og af fagmennsku. Við höfum ákveðið að grunnskólakennarar mennti sig í fimm ár í háskóla. Við viljum að það sé vandað til verka þegar kemur að kennslu og við viljum að besta fólkið veljist í þessi störf. Við höfum engan áhuga á að gambla með börnin okkar, það dýrmætasta sem við eigum. Hvernig stendur þá á því að samfélagið hefur ákveðið að verðmeta kennarastarfið sem láglaunastarf? Hvað klikkaði hjá okkur? Samfélag sem gerir slíkt er ekki gott samfélag. Það er rotið og skemmt og á sér litla framtíð. Nú er samt tækifærið til að gera eitthvað í málunum. Nú höfum við tækifæri til að rífa okkur upp á rassgatinu og hætta þessari vitleysu. Það þarf þjóðarsátt um sanngjörn laun fyrir grunnskólakennara. Það þarf þjóðarsátt um að falla ekki í gamla afbrýðisemispyttinn sem hamlar því endalaust að hægt sé að leiðrétta svona samfélagsvillu. Þarna þarf einfaldlega að verðmeta starfið upp á nýtt. Það er lífsnauðsynlegt ef við ætlum ekki að ganga að menntakerfinu algjörlega dauðu. Við erum að tala um framtíð barnanna okkar. Hvernig verðleggjum við hana? Hún hefur verið sett í ruslflokk allt of lengi. Það er kominn tími á breytingar. Ég styð grunnskólakennara í sinni kjarabaráttu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun! Birta María Aðalsteinsdóttir Skoðun Rangfærslur bæjarstjóra Stefán Georgsson Skoðun Vopnakaup eru landráð Hildur Þórðardóttir Skoðun Er öldrunarhjúkrun gefandi? Ólína Kristín Jónsdóttir Skoðun Halldór 19.10.24 Halldór Rödd skynseminnar Hjördís Guðný Guðmundsdóttir Skoðun Þarf háskólamenntað fólk til að kenna litlum börnum? Aldís Björk Óskarsdóttir Skoðun Hættum þessu bulli – enga strúta hér á landi Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Davíð Bergmann Skoðun Svikinn héri að hætti hússins — Ekki lýðræðisveisla Hjörtur Hjartarson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun! Birta María Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur bæjarstjóra Stefán Georgsson skrifar Skoðun Er öldrunarhjúkrun gefandi? Ólína Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Vopnakaup eru landráð Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Rödd skynseminnar Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Menntun er fjárfesting í framtíðinni Geir Sigurðsson skrifar Skoðun Í átt að betra Íslandi – stjórnmál sem skila árangri Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar Skoðun Meiri eftirspurn eftir lausnum en rifrildum um húsnæðismál Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Hættum þessu bulli – enga strúta hér á landi Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Gerum íslensku að kosningamáli Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Svikinn héri að hætti hússins — Ekki lýðræðisveisla Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Öðruvísi Íslendingar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þarf háskólamenntað fólk til að kenna litlum börnum? Aldís Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkissaksóknara og forseta Hæstaréttar Guðbjörn Jónsson skrifar Skoðun Það er komið nóg Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Í upphafi kosningabaráttu Heimir Pálsson skrifar Sjá meira
Grunnskólakennarar eru í kjarabaráttu. Það eru að vísu svo gamlar og endurteknar fréttir að það er næstum því hlægilegt. Heilu kynslóðirnar þekkja ekki annan veruleika en þann þar sem kennarar eru í verkföllum og í baráttu fyrir bættum kjörum. Það er ekkert skrýtið að kennararnir sjálfir séu orðnir rétt rúmlega langþreyttir og margir að gefast upp. Í mótmælaskyni ætla grunnskólakennarar að ganga út úr skólunum klukkan 13:30 í dag. Mér finnst eiginlega stór furðulegt að þeir ætli að snúa aftur til vinnu á morgun. Konan mín er grunnskólakennari. Ég veit líka að hún er vinsæll og góður kennari. Ég verð samt að hryggja nemendur hennar og foreldra þeirra með því að ég hef hvatt hana til að hætta. Ég hef hvatt hana til að finna sér starf þar sem hún er metin að verðleikum. Þegar öllu er á botninn hvolft er kennarastarfið nefnilega bara vinna. Það er ekki hægt að krefjast þess að kennarar fórni hæfileikum sínum og fjárhagslegri framtíð á altari hugsjónarinnar. Það er pottþétt oft skemmtilegt og gefandi að vera kennari en það er líka ótrúlega slítandi og þreytandi. Og það sem mestu skiptir, það fylgir því gífurleg ábyrgð að vera grunnskólakennari. Það skiptir okkur foreldra óendanlega miklu máli að þeir kennarar sem sjá um menntun barnanna okkar sinni sínu starfi vel og af fagmennsku. Við höfum ákveðið að grunnskólakennarar mennti sig í fimm ár í háskóla. Við viljum að það sé vandað til verka þegar kemur að kennslu og við viljum að besta fólkið veljist í þessi störf. Við höfum engan áhuga á að gambla með börnin okkar, það dýrmætasta sem við eigum. Hvernig stendur þá á því að samfélagið hefur ákveðið að verðmeta kennarastarfið sem láglaunastarf? Hvað klikkaði hjá okkur? Samfélag sem gerir slíkt er ekki gott samfélag. Það er rotið og skemmt og á sér litla framtíð. Nú er samt tækifærið til að gera eitthvað í málunum. Nú höfum við tækifæri til að rífa okkur upp á rassgatinu og hætta þessari vitleysu. Það þarf þjóðarsátt um sanngjörn laun fyrir grunnskólakennara. Það þarf þjóðarsátt um að falla ekki í gamla afbrýðisemispyttinn sem hamlar því endalaust að hægt sé að leiðrétta svona samfélagsvillu. Þarna þarf einfaldlega að verðmeta starfið upp á nýtt. Það er lífsnauðsynlegt ef við ætlum ekki að ganga að menntakerfinu algjörlega dauðu. Við erum að tala um framtíð barnanna okkar. Hvernig verðleggjum við hana? Hún hefur verið sett í ruslflokk allt of lengi. Það er kominn tími á breytingar. Ég styð grunnskólakennara í sinni kjarabaráttu.
Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun! Birta María Aðalsteinsdóttir Skoðun
Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Davíð Bergmann Skoðun
Skoðun Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun! Birta María Aðalsteinsdóttir skrifar
Skoðun Meiri eftirspurn eftir lausnum en rifrildum um húsnæðismál Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Þegar hjarðhegðun skyggir á skynsemi: Tökum upplýsta ákvörðun! Birta María Aðalsteinsdóttir Skoðun
Ætlum við að þjónusta og meðhöndla og meðferða börn í vanda í bílskúr næst? Barnamálaráðherra axlaðu ábyrgð og segðu af þér! Davíð Bergmann Skoðun