Skoðun

Þiggjum með þökk

Orri Hauksson skrifar
Tíma lesenda Fréttablaðsins er ekki vel varið í að lesa langdregið orðaskak okkar Erlings Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur. Ítrekuð ónot GR í garð Símasamstæðunnar hafa verið talin ólögmæt af yfirvöldum neytendamála og verður þetta opinbera fyrirtæki nú vísast talið brotlegt enn á ný fyrir furðulegan atvinnuróg í okkar garð.

Hið fréttnæma er hins vegar, að sl. laugardag kom eitt afar jákvætt fram í máli forsvarsmanns GR, sem vonandi var ekki óviljandi. Þar setti framkvæmdastjórinn nefnilega fram þá stefnumótandi yfirlýsingu að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“.

Þannig vinnur einmitt Míla, dótturfélag Símans, en afstaða GR hefur verið önnur hingað til. Það er því kominn tími til að upplýsa lesendur sem enn fylgjast með að Símasamstæðan hefur um langa hríð reynt að kaupa aðgang að grunninnviðum Gagnaveitu Reykjavíkur, til að veita viðskiptavinum sínum þjónustu um, en án árangurs.

Skattgreiðendur og orkunotendur á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin fimmtán ár verið látnir fjármagna tugmilljarða fjarskiptakerfi, sem nú liggja inni í GR. Því hefur okkur, sem höfum þann starfa að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum fjarskiptaþjónustu, komið á óvart að GR hefur þráfaldlega neitað að selja Símasamstæðunni aðgang að þessum sameiginlegu innviðum, nema gegn þeim afarkostum að keypt séu geypidýr óþarfa atriði í leiðinni, sem hvorki nýtast Símasamstæðunni né viðskiptavinum okkar.

Míla er reglustýrt heildsölufyrirtæki í fjarskiptum, sem selur öllum fjarskiptafélögum margháttaðan aðgang að kerfum sínum um allt land. Fara þau viðskipti fram undir vökulu opinberu eftirliti, sem er afdráttarlausara en þekkist í öðrum löndum.

GR, á hinn bóginn, sinnir nær eingöngu hinu arðbæra höfuðborgarsvæði og hefur fram til þessa setið beggja vegna borðs, verið bæði heildsali og smásali, í margháttuðum hagsmunaárekstrum við viðskiptavini sína. GR lýtur ekki sömu reglustýringu og Míla, heldur rekur GR lokað kerfi sem útilokar eðlilegan aðgang, en hefur nú samt óskað eftir aðstoð yfirvalda til að ná til sín afþreyingarefni Símans, án eðlilegra viðskiptasamninga við rétthafa efnisins.

Til lengri tíma skiptir þessi skrýtna staða reyndar ekki öllu, þar sem Míla mun á næstu tveimur árum ljúka við að uppfæra innviði sína og ljósleiðarakerfi á höfuðborgarsvæðinu, með afar ódýrum og umhverfisvænum hætti.

Þeir sem hafa áhuga á góðri nýtingu opinberra aðfanga og að umhverfisgæðum sé ekki sóað í tilgangsleysi, hljóta enn fremur að fagna afgerandi yfirlýsingu framkvæmdastjóra GR nú um helgina, um að allir eigi að geta „notað grunninnviði frá hverjum sem er“.

Ég geri því ráð fyrir fundi á næstu dögum á til að ganga frá samningum um aðgang Símasamstæðunnar að innviðum GR.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Kjarni máls

Eftir talsvert tilhlaup, þar sem hann endurnýtti eldgamlar rangfærslur um fjárhag Gagnaveitu Reykjavíkur, tókst forstjóra Símans að komast að kjarna málsins í grein hér í blaðinu 17. nóvember. Gagnaveita Reykjavíkur fagnar allri samkeppni og ánægjulegt að sjá Símann gangast að því að ljósleiðari alla leið sé loksins þeirra framtíðarkerfi.

Heilbrigð samkeppni

Um aldamótin síðustu var ástandið í fjarskiptum í höfuð­borginni þannig að það stóð þróun skólastarfs og atvinnurekstri fyrir þrifum. Gagnaflutningur hjá Landsímanum, sem nú er Síminn og Míla, var svo okurdýr að erfitt var að taka upp nýja kennsluhætti og forneskja í gagnaflutningum hindraði þróun atvinnu- og viðskiptahátta.

Skemmtum okkur saman en ekki hvert á kostnað annars

Ótti við aukna samkeppni einkennir skrif Erlings Freys Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, 16. nóvember. Erling gerir tilkall til sjónvarpsefnis Símans með valdboði en ekki viðskiptum.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×