Enski boltinn

West Ham fer illa með kvennaliðið sitt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kvennalið West Ham fær vonandi nýja búninga fljótlega.
Kvennalið West Ham fær vonandi nýja búninga fljótlega. vísir/getty
Búið er að klaga West Ham til enska knattspyrnusambandsins fyrir meðferð sína á kvennaliði félagsins. Það er stjórnarformaður kvennaliðsins sem gerði það.

Sá heitir Stephen Hunt og hann er búinn að fá nóg af meðferðinni sem kvennaliðið fær hjá eigendum félagsins. Eftir margra mánaða deilur hefur hann ákveðið að kvarta til knattspyrnuyfirvalda.

„Það þarf að sekta West Ham þar til félagið fer að haga sér eins og nútímafélag,“ sagði Hunt reiður en West Ham segir á móti að Hunt hafi hótað félaginu og neitað að vinna með þeim.

Forráðamenn Hamranna segjast styðja jafnrétti en samstarfið við Hunt hafi ekki gengið upp. Því ætli félagið að taka yfir reksturinn á liðinu.

Það virðist vera verk að vinna hjá West Ham miðað við þær athugasemdir sem hafa komið frá Hunt.

Hunt segir að West Ham hafi bannað kvennaliðinu að finna sinn eigin styrktaraðila og að liðið hafi litla peninga á milli handanna þar sem stelpurnar hafi þurft að kaupa búningana sína sjálfar.

Hunt segir að West Ham hafi lofað að senda ávísun fyrir útlögðum kostnaði en ekkert hafi bólað á þeim peningum. Þess utan svari félagið ekki skilaboðum frá honum.

Svo þarf liðið að æfa við þjóðveg þar sem félagð hleypir stelpunum ekki inn í æfingasal félagsins. Liðið hefur ekki efni á sjúkraþjálfara né rútu til þess að keyra liðið í leiki.

Búningarnir eru þeir sömu og á síðustu leiktíð. Krotað var yfir nöfn leikmanna á þeim treyjum þar sem nýr leikmaður var kominn í treyju leikmanns frá í fyrra. Allt mjög fagmannlegt.

„West Ham hefur brotið reglur enska knattspyrnusambandsins um jafnrétti kynjanna í boltanum. Í fyrstu hélt ég að þetta væri skortur á áhuga en nú hef ég áttað mig á að þarna er hreinn og beinn brotavilji af hálfu félagsins. Þessi meðferð er löngu hætt að vera fyndin,“ sagði Hunt reiður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×