Elsti fanginn á dauðadeild í Georgíu-ríki líflátinn Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2016 09:57 Brandon Astor Jones var elsti fanginn á dauðadeild í Georgíu-ríki. Hann var tekinn af lífi í fangelsi í borginni Jackson skömmu eftir miðnætti í nótt. Vísir/Getty/AFP
Hinn 72 ára Brandon Astor Jones var tekinn af lífi með eitursprautu í Georgíu í gær. Jones var dæmdur til dauða fyrir að hafa skotið verslunareiganda til bana í ráni fyrirtæpum fjörutíu árum. Jones var elsti fanginn á dauðadeild í Georgíu-ríki og tekinn af lífi skömmu eftir miðnætti í nótt, í fangelsi í borginni Jackson.Annar maðurinn sem er líflátinn vegna morðsins Jones er annar maðurinn sem tekinn er af lífi vegna morðsins á hinum 35 ára Roger Tackett í verslun í úthverfi Atlanta í júní 1979. Samverkamaður Jones, Van Roosevelt Solomon, var tekinn af lífi vegna morðsins árið 1985.Í frétt Sky News segir að Jones hafi varið mörgum árum í að berjast gegn dómnum. Alríkisdómstóll breytti dómnum í lífstíðarfangelsi árið 1989, á þeim grundvelli að dómari hafi á sínum tíma heimilað kviðdómendum að hafa biblíu inni í fundarherbergi sínu og slíkt hafi mögulega haft áhrif á niðurstöðuna. Annar dómstóll breytti svo dómnum aftur í dauðadóm árið 1997.Hafnaði „hinstu máltíðinni“ Jones hafnaði því að neyta „hinstu máltíðarinnar“, og fékk þess í stað máltíð af matseðli fangelsisins. Aftökunni var frestað um nærri sex tíma vegna röð áfrýjana lögmanna hans. Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði beiðni Jones um frestun á aftöku seint á þriðjudagskvöld. Hæstiréttur í Georgíu og fangelsismálayfirvöld höfðu áður hafnað beiðni hans um að dómnum yrði breytt í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.Fimmta aftakan það sem af er áriAftakan í nótt er sú fimmta í Bandaríkjunum á árinu, og önnur tveggja sem fyrirhuguð er í Georgíu í þessum mánuði. Fangar í Texas, Alabama og Flódída voru teknir af lífi í janúarmánuði. 28 dauðadæmdir menn voru líflátnir í bandarískum fangelsum á síðasta ári og höfðu þeir ekki verið færri frá árinu 1999. Metárið 1999 voru 98 fangar teknir af lífi í Bandaríkjunum.
Mest lesið Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Sjá meira