Enski boltinn

Schweinsteiger í leikmannahópi Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bastian Schweinsteiger.
Bastian Schweinsteiger. vísir/getty
Þó svo Bastian Schweinsteiger hafi ekki átt upp á pallborðið hjá Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, þá verður hann til taks fram að áramótum hið minnsta.

Schweinsteiger skipti ekki um félag í síðasta mánuði þó svo hann viti að Mourinho hafi engin not fyrir hann. Schweinsteiger hefur verið látinn æfa einn og með U-23 ára liði félagsins.

Mourinho setti Schweinsteiger þó í 25 manna leikmannahóp sinn í ensku úrvalsdeildinni. Öll félög þurftu að skila slíkum lista í gær. Þó svo Þjóðverjinn sé í þessum leikmannahópi þarf mikið að ganga á áður en hann fær tækifæri.

Schweinsteiger reynir þó að vera jákvæður og segist ætla að vera tilbúinn ef kallið kemur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×