Menning

Mín vinnustofa er reyndar landið allt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Á sýningunni Vistkerfi lita einbeitir Hildur sér að tengingu við landspilduna sem hún á í Flóanum og áhrifin sem þær hafa hvor á aðra.
Á sýningunni Vistkerfi lita einbeitir Hildur sér að tengingu við landspilduna sem hún á í Flóanum og áhrifin sem þær hafa hvor á aðra. Vísir/Hanna
Stórir jurtalitaðir silkidúkar á léttu svifi, hangandi út um allan sal, og ofin málverk á veggjum mynda sýninguna Vistkerfi lita sem Hildur Bjarnadóttir myndlistarkona opnar á morgun klukkan 16 í vestursal Kjarvalsstaða. Jurtir eins og klófífa, engjarós, lokasjóður, blóðberg, þursaskegg og maríustakkur eiga þar sína tóna.

„Í þessum verkum nota ég eingöngu jurtir úr eigin landspildu austur í Flóa til að lita úr, þannig tengist ég sjálf þessum stað í gegnum gróðurinn. Verkin mynda kerfi sem dregur fram mismunandi tilfinningar, upplýsingar og eiginleika staðarins,“ segir Hildur.

Hún kveðst hafa fest kaup á skikanum fyrir rúmum þremur árum, ásamt manni sínum, Ólafi Sveini Gíslasyni.

„Ólafur er líka myndlistarmaður, við höfum nú byggt okkur vinnustofuhús á landinu. Mín vinnustofa er reyndar landið allt,“ segir hún brosandi og lýsir gagnkvæmum áhrifum hennar og gróðursins. „Ég hef áhrif á gróðurinn með því að girða landið af og friða það fyrir beit og gróðurinn hefur áhrif á það sem ég geri. Samband manns og náttúru er svo margslungið.“

Á veggjunum hanga fínlega mynstruð verk sem Hildur hefur gert í vefstól. „Þetta eru ofin málverk,“ segir hún. „Efnið er hörþráður, litaður með akrýlmálningu, og ullarþráður sem litaður er með jurtum af landinu.

Í þessum verkum er markmiðið að hafa aldrei tvo þræði af sömu gerð hlið við hlið, þannig mótast þessir lóðréttu og láréttu litapunktar,“ segir hún og bendir á að í verkunum myndist samspil á milli þessara tveggja ólíku litakerfa, náttúrlegra lita og manngerðra.

Hildur ólst upp í Fossvoginum. Hún lauk námi frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1992 og útskrifaðist árið 1997 með MFA próf frá nýlistadeild Pratt Institute í Brooklyn, New York. Síðan haustið 2013 hefur hún stundað doktorsnám í myndlist við Listaháskólann í Bergen.

Hún hefur haldið fjölda einkasýninga víða um heim, þær síðustu eru Colors of Belonging í Bergen Kjøtt í Noregi 2015, Subjective Systems í Kunstnerforbundet í Osló og Kortlagning lands í Hverfisgalleríi árið 2014.

Einnig hefur hún tekið þátt í fjölmörgum samsýningum, þar má meðal annars nefna Your Compound View í Listasafni Reykjavíkur, 2013, Ele­mental, Havremagasinet í Bodø í Svíþjóð og Carnegie Art Award Exhibition, Stenersens Museum í Osló, 2012-13.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.