Enski boltinn

Markalaust í góðgerðarleik Rooney | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rooney gengur út á völlinn með börnin sín þrjú.
Rooney gengur út á völlinn með börnin sín þrjú. Vísir/Getty
Ekkert mark var skorað þegar Manchester United og Everton áttust við í góðgerðarleik til heiðurs Wayne Rooney á Old Trafford í kvöld.

Rooney var hylltur á heimavelli sínum en hann kom frá Everton til United árið 2004 og hefur skipað sér sess sem einn af bestu leikmönnum Manchester United síðari ára.

Honum var skipt af velli á 53. mínútu og var þá hylltur af áhorfendum á Old Trafford. Rooney hóf feril sinn hjá Everton og því viðeigandi að liðið væri andstæðingur United í kvöld.

Zlatan Ibrahimovic spilaði í kvöld sinn fyrsta leik fyrir United á Old Trafford en Svíinn kom til félagsins í sumar frá PSG í Frakklandi.

Myndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×