Erlent

Franski leikarinn Galabru er látinn

Atli ísleifsson skrifar
Galabru kom fram í rúmlega 250 myndum
Galabru kom fram í rúmlega 250 myndum Vísir/Getty
Franski leikarinn og grínarinn Michel Galabru lést í dag, 93 ára að aldri.

Galabru kom fram í rúmlega 250 myndum og var einn ástsælasti leikari Frakka og einn vinsælasti skemmtikraftur landsins.

Hann var einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem höfðinginn í frönsku kvikmyndinni Ástríkur og Steinríkur mæta Sesar frá árinu 1999 með þeim Gerard Depardieu og Christian Clavier í aðalhlutverki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×