Tíska og hönnun

Karl Lagerfeld velur íslenskt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lagerfeld þekkir tískubransann inn og út. Hér má sjá umfjöllun Vouge og forsíðu blaðsins.
Lagerfeld þekkir tískubransann inn og út. Hér má sjá umfjöllun Vouge og forsíðu blaðsins.
Tískukóngurinn Karl Lagerfeld notar íslenskar húðvörur en þetta kemur fram í nýjasta tölublaði franska Vogue.

Íslensku húðdroparnir EGF Serum og 30 Day Treatment frá BIOEFFECT eru til umfjöllunar í desemberblaði franska Vogue sem hluti af húðvörum sem Karl Lagerfeld, listrænn stjórnandi Chanel tískuhússins, notar í sinni húðumhirðu. Karl sjálfur hafði umsjón yfir efnistök og hönnun desemberútgáfu Vogue.

„Við erum mjög ánægð og þakklát fyrir svona jákvæða umfjöllun þar sem íslenskar vörur, sem keppa á markaði þar sem samkeppni er gífurlega hörð, skulu vera sérvaldar af einum mesta áhrifavaldi í þessum geira og birtast í jafn virtu tímariti sem hið franska Vogue sannarlega er,“ segir Hildur Ársælsdóttir, markaðsstjóri BIOEFFECT sem er dótturfyrirtæki Orf Líftækni og bætir hún því við að þetta sé gríðarlega viðurkenning á vörum BIOEFFECT.

„Það er líka gaman að segja frá því að Karl Lagerfeld hefur notað vörurnar okkar í nokkur ár og er tryggur viðskiptavinur en hann verslar BIOEFFECT í Colette í París,“ segir hún ennfremur. Karl Lagerfeld prýðir forsíðu blaðsins sjálfur að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.