Enski boltinn

Gylfi hafði betur í Íslendingaslagnum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea höfðu betur í Íslendingaslagnum í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar en eina mark leiksins skoraði Leroy Fer.

Gylfi og Jóhann Berg Guðmundsson byrjuðu báðir á bekknum í dag en komu inná í seinni hálfleik í stöðunni 0-0. Fram að því höfðu gestirnir frá Wales verið hættulegri aðilinn.

Fer kom Swansea yfir átta mínútum fyrir lok leiksins þegar hann tók frákastið eftir skalla Fernando Llorente og stýrði boltanum í autt netið.

Burnley náði ekki að svara á lokamínútum leiksins og þurftu lærisveinar Sean Dyche því að sætta sig við tap í fyrsta leik á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×