Formúla 1

Nico Rosberg vann í Singapúr

Nico Rosberg var öflugur í dag og vann í sinni 200. keppni í Formúlu 1.
Nico Rosberg var öflugur í dag og vann í sinni 200. keppni í Formúlu 1. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark á Marina Bay brautinni í Singapúr. Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes þriðji.

Rosberg er nú kominn með forystu í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hann er nú með átta stiga forskot á liðsfélaga sinn, Hamilton. Sebastian Vettel ók gríðarlega vel í dag á Ferrari bílnum. Hann ræsti aftastur og endaði fimmti.

Romain Grosjean tók ekki þátt í keppninni. Frakkinn skautaði á varnarvegg í tímatökunni í gær á Haas bílnum. Bremsurnar virkuðu ekki í undirbúningshring og Haas bíllinn settur inn í bílskúr fyrir keppni.

Öryggisbíllinn var kallaður út strax eftir ræsingu keppninnar. Nico Hulkenberg á Force India lenti í samstuði við Carlos Sainz á Toro Rosso. Aðrir voru einkar heppnir að sleppa við bíl Hulkenberg sem snérist á ráskaflanum. Hulkenberg hætti keppni.

Fernando Alonso átti afar góða ræsingu hann ræsti níundi af stað á McLaren bílnum en var orðinn fimmti eftir ræsinguna.

Rosberg fékk ítrekuð skilaboð á hringjum átta og níu að hann þyrfti að passa hitan í bremsunum. Of heitar bremsur eru eitt helsta vandamálið sem hrjáir bílana á Singapúr brautinni.

Kimi Raikkonen hóf að sækja að Hamilton eftir fyrsta þjónustuhléið og var kominn um og undir sekúnduna á 26 hring. Það er erfitt að taka fram úr á Marina Bay brautinni og Raikkonen varð ekkert ágengt fyrr en á 33 hring þegar Hamilton læsti hægra framdekkinu á leiðinni inn í beygju. Raikkonen var þá kominn fram úr Hamilton og í síðasta verðlaunasætið.

Sebastian Vettel bjargaði því sem bjargað varð í dag.Vísir/Getty
Hamilton fékk skilaboð um að nú væri kominn tími til að skipta yfir á áætlun B á hring 39. Hann ætti að ná Raikkonen aftur. Þá var Hamilton um fjórum og hálfri sekúndu á eftir Raikkonen.

Vettel tók sitt síðasta þjónustuhlé á 43. hring, hann fékk þá últra-mjúku dekkin undir. Vettel kom út í sjötta sæti og hóf aðför að Verstappen í fimmta sætinu. Verstappen brást við með því að taka þjónustuhlé tveimur hringjum seinna og Vettel var orðinn fimmti eftir að hafa ræst 22. af stað.

Hamilton kom inn á þjónustusvæðið á 46. hring og Raikkonen kom inn á næsta hring. Hamilton komst fram úr Raikkonen með þessu þjónustusvæði. Baráttan um þriðja sætið var orðin hörð. Raikkonen var á últra-mjúkum dekkjum en Hamilton á ofur-mjúkum, sem eru ögn harðari.

Ricciardo kom inn á 47. hring. Á meðan setti Rosberg allt í botn. Rosberg átti að koma inn á þjónustusvæðið en fór framhjá. Mercedes liðið var reiðubúið að taka á móti Rosberg. Ricciardo nálgaðist Rosberg afar hratt. Þegar tíu hringir voru eftir var bilið á milli Rosberg og Ricciardo 16 sekúndur.

Bilið var orðið fimm sekúndur á milli Rosberg og Ricciardo þegar fimm hringir voru eftir. Á sama tíma var Raikkonen farinn að gera aðra atlögu að þriðja sætinu sem Hamilton var með. Bilið þar á milli var komið undir eina og hálfa sekúndu þegar fimm hringir voru eftir.

Rosberg reyndi að svara aðeins fyrir sig og tókst það á meðan Ricciardo sneyddi fram úr hægfara bílum. Ricciardo tókst ekki að ná Rosberg þrátt fyrir afar góða tilraun og spennandi loka hringi.


Tengdar fréttir

Rosberg: Einn af mínum bestu hringjum

Nico Rosberg náði í sinn sjöunda ráspól á tímabilinu á Marina Bay brautinni í dag. Hann var ósnertanlegur á nýju brautarmeti. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg á ráspól | Vettel aftastur

Nico Rosberg á Mercedes mun ræsa fremstur í Singapúr kappastrinum á morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes þriðji.

Mercedes vonast eftir betri keppni í Singapúr

Mercedes liðið í Formúlu 1 telur sig hafa fundið útskýringu slakrar frammistöðu í Singapúr á síðasta ári. Þá voru báðir ökumenn liðsins rúmri sekúndu frá ráspól í tímatöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×