Birkir kom inn á og lagði upp mark í stórsigri Basel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. júlí 2016 13:37 Birkir lagði fjórða mark Basel upp. vísir/epa
Birkir Bjarnason lék síðustu 26 mínúturnar þegar Basel vann 1-5 útisigur á Vaduz í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Basel hefur þar með unnið báða leiki sína í deildinni til þessa en liðið lagði Sion að velli, 3-0, í 1. umferðinni. Austurríski landsliðsmaðurinn Marc Janko kom svissnesku meisturunum yfir strax á 4. mínútu og stundarfjórðungi síðar tvöfaldaði Matías Delgado forystuna með marki úr vítaspyrnu. Simone Grippo minnkaði muninn í 1-2 á 31. mínútu en Norðmaðurinn Mohamed Elyounoussi sá til þess að Basel leiddi með tveimur mörkum í hálfleik þegar hann skoraði þriðja mark liðsins á 42. mínútu. Birkir kom inn á sem varamaður fyrir Delgado á 64. mínútu. Íslenski landsliðsmaðurinn lét að sér kveða og lagði upp mark fyrir Renato Steffen á lokamínútunni. Það var svo Seydou Doumbia sem rak síðasta naglann í kistu Vaduz þegar hann skoraði fimmta mark Basel á 92. mínútu. Birkir er á sínu öðru tímabili hjá Basel en hann varð svissneskur meistari með liðinu í fyrra.
Fótbolti Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Körfubolti Fleiri fréttir Hermann hættur með ÍBV Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Bestu guttarnir í Bestu deild karla Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Sjá meira