Menning

Hugarflug, ráðstefna Listaháskólans, hefst í dag

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir forstöðumaður rannsóknaþjónustu Listaháskóla Íslands.
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir forstöðumaður rannsóknaþjónustu Listaháskóla Íslands. Mynd/Hörður Ásbjörnsson
Hugarflug er árleg ráðstefna Listaháskólans og verður nú haldin í fimmta sinn. Vegna þeirra tímamóta er ráðstefnan í sérstökum hátíðarbúningi. Nemendur munu setja svip sinn á ráðstefnuna á forvitnilegan hátt. Ráðstefnan fer fram í húsnæði Listaháskólans á Laugarnesvegi 91, og hefst dagskráin formlega klukkan 18.00 í dag 18. febrúar, þegar Rolf Hughes, prófessors í University of the Arts í Stokkhólmi, mun flytja fyrirlestur.

„Dagskráin er afar vegleg í ár en í dag mun Rolf Hughes, prófessor í University of the Arts í Stokkhólmi,flytja fyrirlestur, ásamt pallborðsumræðum með Fríðu Björk Ingvarsdóttur, rektor Listaháskólans, og þátttöku ráðstefnugesta“ segir Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu Listaháskóla Íslands.

Yfirskrift lykilfyrirlestursins er Monstrous Research Strategies: On Creating an Experimental Flying Circus, og setur fram ljóðræna og hressandi myndlíkingu um skrímsli þegar blöndun vísinda og listsköpunar á sér stað.

„Aðaldagskráin fer svo fram föstudaginn 19. febrúar en þá fara fram átján málstofur, gjörningar, vinnustofur og sameiginlegar umræður með þátttöku yfir sjötíu listamanna, hönnuða, kennara, fræðimanna og annars fagfólks á sviði menningar, lista og menntunar,“ segir Ólöf Gerður fulltilhlökkunar.

Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun með áherslu á listrannsóknir og þann fjölbreytileika sem einkennir nálgun, aðferðir, efnistök og miðlun á sviðinu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.