Best geymda leyndarmál Juventus á leið til United Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. júní 2017 11:00 Javier Ribalta.
Javier Ribalta, yfirnjósnari Ítalíumeistara Juventus, er að ganga í raðir Manchester United en það er ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio sem greinir frá þessu á heimasíðu sinni. Juventus hefur nú þegar staðfest að Ribalta sé að yfirgefa félagið en það kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu ítölsku meistaranna þar sem Ribalta eru þökkuð góð störf. Ribalta er kallaður útsendari 007 eins og James Bond í ítölskum miðlum en hann er sagður eitt best geymda leyndarmál Juventus og stór ástæða þess að liðið hefur unnið Ítalíumeistaratitilinn fimm ár í röð og farið tvisvar sinnum í úrslit Meistaradeildarinnar. Hann er með 20 menn á sínum snærum sem fylgjast með góðum og efnilegum leikmönnum. Hann er líka sagður einstaklega fær í því að fá góða leikmenn fyrir lítið fé þar sem hann er mjög vel tengdur. Ribalta komst meðal annars að því að í samningi Dani Alves hjá Barcelona var klásúla sem tryggði Juventus bakvörðinn frítt en Alves spilaði frábærlega á síðustu leiktíð. Hann fékk einnig Andrea Pirlo, Sami Khedira og Fernando Llorente til Juventus án greiðslu og þá ber hann ábyrgð á Arturo Vidal og Paul Pogba. Þeir komu fyrir lítið fé en voru svo seldir á svakalegar upphæðir. Argentínumaðurinn Paulo Dybala er líka leikmaður sem Ribalta og hans menn fundu og þá vildi Ribalta fá Álvaro Morata til Juventus. Spænski framherjinn kostaði 20 milljónir evra og skoraði mikilvæg mörk sem komu liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en hann var svo seldur til baka til Real fyrir 30 milljónir evra. Ribalta er sagður hafa myndað mikil og góð tengsl við Álvaro Morata þegar hann var hjá Juventus og kemur því ekkert sérstaklega á óvart að United sé nú að reyna að fá Spánverjann til liðs við sig.
Enski boltinn Tengdar fréttir Morata-sagan lengist því Real vill ríflega tíu milljarða fyrir framherjann Álvaro Morata er líklegur til að verða næsti leikmaður Manchester United en félagaskiptasagan heldur áfram. 16. júní 2017 08:45 United hefur varann á gagnvart Ronaldo til að missa ekki af Morata Forráðamenn Manchester United fara varlega í Ronaldo-málið því Álvaro Morata er maðurinn sem Mourinho vill fá. 21. júní 2017 15:15 Mest lesið Bein útsending: Rakel María er hætt en fjórtán eru enn að hlaupa Sport Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Grizzlies semja við lágvaxnasta leikmann NBA deildarinnar Körfubolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Íslenska ofurfólkið sem keppir á HM í bakgarðshlaupi Sport Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira
Morata-sagan lengist því Real vill ríflega tíu milljarða fyrir framherjann Álvaro Morata er líklegur til að verða næsti leikmaður Manchester United en félagaskiptasagan heldur áfram. 16. júní 2017 08:45
United hefur varann á gagnvart Ronaldo til að missa ekki af Morata Forráðamenn Manchester United fara varlega í Ronaldo-málið því Álvaro Morata er maðurinn sem Mourinho vill fá. 21. júní 2017 15:15