Menning

Fyrirmyndin með á tónleikunum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Aðventan hefst í Hofi með Norðlenskum konum í tónlist.
Aðventan hefst í Hofi með Norðlenskum konum í tónlist.
Ljósin ljómandi skær er yfirskrift jólatónleika sem norðlenskar konur í tónlist halda í Menningarhúsinu Hofi í kvöld, 2. desember. Þeir hefjast klukkan 20. Konurnar ætla að leiða gesti inn í aðventuna með ljúfum tónum og flytja þekkt og minna þekkt lög. Frumflutt verður jólalag og texti eftir Láru Sóleyju og Hjalta Jónsson og séra Hildur Bolladóttir samdi texta við eitt laganna.

Fram koma Ave Sillaots, Ásdís Arnardóttir, Ella Vala Ármannsdóttir, Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Helga Kvam, Kammerkórinn Ísold, undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur, Kristjana Arngrímsdóttir, Lára Sóley Jóhannsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir.



Helena Eyjólfsdóttir er heiðursgestur tónleikanna. „Okkur hefur lengi langað að fá Helenu til að syngja með okkur á tónleikum og það er alveg dásamlegt að þessi fyrirmynd okkar allra skuli vera með okkur nú,“ segir Helga Kvam, píanóleikari og tónlistarstjóri tónleikanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.