Febrúarspá Siggu Kling – Steingeit: Kauphækkun er svo sannarlega inni í tíðninni þinni 3. febrúar 2017 09:00
Elsku steingeitin mín, mikið afskaplega finnst mér mikið varið í þig. "Þú hefur svo margt til að bera þó að þú viljir það ekki endilega með öðrum „share-a“. Sú manneskja getur verið örugg sem á vin í steingeitardeildinni. Sonur minn er steingeit, við höfum aldrei rifist en hann segir: "þú þarft að kunna leikinn" og þá er hann að meina að láta ekki út úr sér það sem særir aðra, eða búa til leiðindi og þar með talið slúður. Ég elska að læra þennan leik. Þetta er stórt tímabil sem þú ert að fara inn í og finnur hversu margir hlutir í kringum þig ná til þín. Þú finnur að það eru litlu hlutirnir sem gera þína hamingju. Þú áttar þig á því að gera bara eitt í einu, þá gengur allt sem þú gerir svo miklu miklu betur. Þú finnur að þú verður miklu rólegri yfir hlutum sem settu þig á hliðina ekki alls fyrir löngu. Það er eins og þú hafir þroskast um nokkur ár síðustu 3-6 mánuði. Af því að þú ert farin að meta sjálfa þig og það sem þú gerir miklu betur. Og næstu mánuði margfaldast þessi orð mín og gefa þér enn þá betri útkomu. Ástin er alltaf jafn mikilvæg og ef þú ert á lausu, hjartað mitt, þá skalt þú ekki velja þér ástarfélaga sem breytir þér heldur bætir þig. Ekki get ég séð að það sé nokkuð stress í ástinni hjá þér. Vertu bara alveg viss um að þetta sé ást en ekki þráhyggja. Í vinnu er allt að ganga ágætlega, þér finnst alltaf að það mætti ganga betur. Það er sjaldgæft að þú sért sátt við árangurinn, þar af leiðandi getur þú verið dálítið á undan sálinni þinni. Þú ert fyrirmynd svo marga, hörkudugleg í því sem þú nennir. Og ef vinnan gefur þér ekki gleði þá skaltu prófa að gefa vinnunni gleði. Kauphækkun er svo sannarlega inni í tíðninni þinni, en yfirmaðurinn þinn veit að sjálfsögðu ekki hvað þú ert að hugsa. Eins og þú ert sterk þá hræðistu stundum höfnun en þú færð kauphækkun og enga höfnun. Annars skal ég éta hattinn minn. Mottó – less is moreFrægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Lífið Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Bíó og sjónvarp Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Svona var fjögurra rétta matseðillinn Lífið Húsfyllir þegar tískusýning tók yfir Ásmundarsal Tíska og hönnun Katrín Halldóra fyllir í stóra skó í Ladda Lífið Guðni Th. orðinn afi Lífið Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Lífið Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Lífið Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Lífið Fleiri fréttir Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó í Ladda Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Svona var fjögurra rétta matseðillinn Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Tónhylur sameinar reynslubolta og þá efnilegustu Geðbrigði er sigurvegari Músiktilrauna Fjölskylda Bryndísar Klöru þakklát Seldu draumahúsið og skella sér í Asíuævintýri með krakkana Laufey sendir lekamönnum tóninn Sjá meira