Innlent

Tveir skipta með sér 24 milljónum eftir lottó kvöldsins

Birgir Olgeirsson skrifar
24 milljónir gengu út í lottói kvöldsins.
24 milljónir gengu út í lottói kvöldsins. Vísir/Valli
Tveir miðahafar voru með allar tölur réttar í Lottói kvöldsins. Annar miðanna var keyptur í Happahúsinu, Kringlunni, og hinn var keyptur í Samkaup strax, Byggðavegi, Akureyri. Miðahafarnir skipta því með sér 1. vinning og hlýtur hvor rúmlega 12 milljónir. Einn miðahafi var með bónusvinning en sá heppni var í áskrift og hlýtur rúmlega 400 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×