Tottenham vann og Jói Berg lagði upp mark Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2017 15:45 Harry Kane náði ekki að skora í dag Vísir/Getty Tottenham vann 1-0 sigur á Bournemouth í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Christian Eriksen skoraði sigurmarkið á 47. mínútu, en Harry Kane, sem hefur verið sjóðheitur að undanförnu, náði ekki að skora fyrir Tottenham. Jóhann Berg Guðmundsson lagði upp jöfnunarmark Burnley gegn West Ham. Jóhann Berg hafði byrjað leikinn á bekknum en kom inn á í byrjun seinni hálfleiks. Hann lagði upp mark Chris Wood á 85. mínútu, en Michail Antonio hafði komið gestunum yfir á 19. mínútu. West Ham var manni færri bróðurpart leiksins, en Andy Carroll fékk tvö gul spjöld á stuttum tíma þegar aðeins um hálftími var liðinn af leiknum. Tammy Abraham sá um að skora mörkin fyrir Swansea sem sigraði nýliða Huddersfield 2-0 á heimavelli. Enski boltinn