Ofureldfjall rumskar eftir 500 ár í dvala Svavar Hávarðsson skrifar 2. janúar 2017 06:00 Fjallið Vesúvíus rís yfir Napolí – en eldstöðin vð borgina sem nú bærir á sér er miklu stærri og öflugri. NordicPhotos/AFP
Eldfjallið mikla Campi Flegrei sem teygir sig til himins rétt vestan við borgina Napólí á Ítalíu virðist vera að rumska. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir fréttirnar ekki góðar enda geymir sagan dæmi um sprengigos sem myndaði öskju sem er tólf kílómetrar í þvermál. Haraldur segir að síðustu umbrot í fjallinu hafi orðið um miðja 16. öld, þau hafi verið lítil en samt valdið usla. Þá hlóðst upp nýtt gígmyndað fjall, Monte Nuovo. Hann skrifar: „Miklar breytingar eru í gangi í hverum í öskjunni og land er að rísa. Gasstreymi upp úr hverum í öskjunni hefur stöðugt aukist síðan mælingar hófust í kringum 1982. Samfara því hefur hiti í hverunum aukist, og landris er í gangi,“ segir Haraldur og vitnar til rannsókna ítalskra jarðvísindamanna sem spá því að líkur séu á eldgosi innan 100 til 120 ára.Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur„Þeir telja jafnvel að gos gæti hafist innan fjögurra til fimm ára, en líkur eru á að það verði síðar. Það er því mikil óvissa í gangi, en það er greinilegt að áhættuástand ríkir á svæðinu, þar sem þúsundir búa nú og mikil mannvirki eru fyrir hendi.“ Þessu sama er sagt frá í frétt BBC. Eins og hjá Haraldi er vitnað til sérfræðinga sem ítreka hvað spár um eldgos geta verið vandasamar en þeir segja engu að síður að nú sem aldrei fyrr krefjist Campi Flegrei athygli vísindamanna. Ástæðan sé sú að eldsumbrotin yrðu í bakgarði hálfrar milljónar manna. Ef litið er langt aftur í söguna má færa fyrir því rök að stærsta eldgos allra tíma í Evrópu megi rekja til þessa svæðis – og tengjast þau umbrot einni þeirra kenninga sem eru uppi um endalok Neanderdalsmannanna. Annað þekktara eldfjall er stutt frá Campi Flegrei, en það er fjallið Vesúvíus, austan megin við borgina Napólí. Þau ósköp sem fylgdu eldgosinu árið 79 eru öllum þekkt en Campi Flegrei kerfið er þó miklu stærra og víðfeðmara – og liggur stór hluti þess undir bláum öldum Miðjarðarhafsins.
Mest lesið Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Ísraelar herja á miðborg Beirút Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Tvö innbrot í verslanir í dag Innlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira