Innlent

Sex bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi nú síðdegis.
Frá vettvangi nú síðdegis. vísir
Sex bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi til norðurs skammt frá Hamraborg í Kópavogi nú fyrir skemmstu. Tilkynning um áreksturinn barst lögreglu klukkan 15:13 en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var einn sjúkrabíll sendur á staðinn en talið er að meiðsl á fólki séu minniháttar.

Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að búast megi við talsverðum umferðartöfum á meðan verið sé að greiða úr málum.

Það sé þó svo að síðdegis sé öllu minni umferð í þessa átt en til suðurs þar sem fleiri eru á þeirri leið síðdegis og á norðurleið á morgnana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×