Griezmann: 60 prósent líkur á því að ég fari til Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. maí 2017 20:42 Antoine Griezmann fagnar marki á móti Íslandi á EM. Vísir/EPA
Antoine Griezmann, franski framherjinn hjá Atletico Madrid, segir góðar líkur vera á því að hann fari til enska liðsins Manchester United í sumar. Þessi 26 ára gamli leikmaður sagði frá því í viðtali í franka sjónvarpsþættinum Quotidien. BBC segir frá. „Ég held að ég muni ákveða framtíð mína á næstu tveimur vikum,“ sagði Antoine Griezmann en hann var í framhaldinu spurður út í orðróminn um að hann væri að fara til Jose Mourinho hjá Manchester United. „Mögulegt, mögulegt,“ svaraði Griezmann. En hverjar eru líkurnar frá einum til tíu? „Sex,“ svaraði Antoine Griezmann. Griezmann játti því að þetta væri í fyrsta sinn sem hann talaði opinberlega um möguleikann á því að fara til enska stórliðsins. Antoine Griezmann varð marhkaæsti leikmaður Evrópumótsins í Frakkklandi síðasta sumar og hann skoraði 26 mörk fyrir Atletico á þessu tímabili. Hann varð í þriðja sæti í kjörinu á besta knattspyrnumanni heims fyrir árið 2016 á eftir þeim Cristiano Ronaldo og Lionel Messi. Manchester United getur keypt Griezmann út úr samningi hans við Atletico en það mun kosta félagið 100 milljónir evra. Næst á dagskrá hjá Manchester United er að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni en það getur liðið gert með sigri á Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudagskvöldið. Það má búast við því að Antoine Griezmann fylgist vel með þeim leik.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Fleiri fréttir Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Elfsborg að kaupa Júlíus Magnússon Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum Hvíldu stórstjörnurnar sínar en brunuðu áfram í bikarnum Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Keane tekur við sigursælasta félagi Ungverjalands Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Hlín endursamdi við Kristianstad Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Sjá meira