Seldu yfir 5000 djúsa til styrktar UN Women Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. febrúar 2017 12:00 Hluti af starfsfólki Joe & the Juice sem tók þátt í söfnunarátakinu.
Rúmlega 5000 djúsar seldust til styrktar UN Women á Joe & the Juice í janúar en ágóðinn rennur beint til verkefna samtakanna sem hafa það að markmiði að uppræta ofbeldi gegn konum og stúlkum í fátækustu löndum heims. Í tilkynningu frá UN Women á Íslandi kemur fram að samtökin og veitingastaðurinn hafi efnt til sameiginlegs átaks dagana 18. til 31. janúar en viðskiptavinum Joe & the Juice bauðst að bæta 100 krónum við hvern stóran djús á matseðli og bætti veitingastaðurinn þá sömu upphæð við hvern drykk. Haft er eftir Ingu Dóru Pétursdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi, að móttökur viðskiptavina Joe & the Juice hafi verið afar ánægjulegar. „Þetta magnaða framlag viðskiptavina Joe & the Juice sýnir sterka afstöðu viðskiptavina staðarins gegn kynbundnu ofbeldi og þá ríku meðvitund almennings um vandann sem því miður er gríðarstór. Söfnunin sýnir líka vel að margt smátt gerir eitt stórt og framlag viðskiptavina Joe & the Juice og fyrirtækisins er ómetanlegt.“ Framkvæmdastjóri Joe & the Juice, Daníel K. Stefánsson, tekur í sama streng og þakkar viðskiptavinum og starfsfólki fyrir stuðninginn. „Ef starfsfólk Joe & the Juice hefði ekki tekið svona vel í átakið hefði það aldrei skilað þessum árangri. UN Women sinnir mikilvægu starfi og því kom aldrei neitt annað til greina en að taka þátt í þessu átaki þegar hugmyndin kom upp,“ segir Daníel. Í tilkynningu segir að ágóðinn renni til „verkefna UN Women, t.d. athvarfs í borginni Siem Reap í Kambódíu fyrir fórnarlömb sýruárása þar sem konum er tryggð læknisaðstoð, sálfræðiaðstoð og jafningjastuðningur og athvarfs í Austur-Kongó fyrir konur sem þurft hafa að þola gróft kynbundið ofbeldi þar sem konur fá bráðalæknaþjónustu, áfallahjálp, sálfræðiaðstoð og lagalega aðstoð á leið aftur út í lífið.“
Mest lesið Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Koma siglandi og sótt á hestvagni Innlent Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Erlent Snjókoma og hálka á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag Veður Fleiri fréttir „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Koma siglandi og sótt á hestvagni Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Sjá meira