Innlent

Matur og vistun dýrust í grunnskólum Garðabæjar

Benedikt Bóas skrifar
Í samanburðinum er miðað við þriggja tíma dagleg vistuna eftir skóla ásamt síðdegishressingu og hádegismat í 21 dag á mánuði.
Í samanburðinum er miðað við þriggja tíma dagleg vistuna eftir skóla ásamt síðdegishressingu og hádegismat í 21 dag á mánuði. mynd/steinn vignir
Samkvæmt nýrri saman­tekt verðlagseftirlits ASÍ er hæst verð fyrir hádegisverð og síðdegisvistun grunnskólabarna í Garðabæ, eða 36.484 krónur á mánuði en lægst í Sveitarfélaginu Skagafirði þar sem þjónustan kostar 24.234 krónur. Allt að 51 prósents munur er á kostnaði foreldra vegna þjónustunnar meðal stærstu sveitarfélaga landsins samkvæmt samantektinni.

Heildarkostnaður foreldra vegna þessarar þjónustu hefur hækkað í öllum fimmtán sveitarfélögunum sem skoðuð voru. Mesta hækkunin milli ára er í Reykjavík þar sem þjónustan hækkaði um ellefu prósent. Munar þar mest um þrjátíu prósenta hækkun á hádegisverði.

Ef eingöngu er skoðuð gjaldskrá fyrir hádegisverð sem í boði er fyrir grunnskólabörn á öllum aldri má sjá að allt að 41 prósents verðmunur er á milli sveitarfélaga. Hæsta verðið er á Ísafirði þar sem máltíðin kostar 492 krónur. Akureyri og Vestmannaeyjar eru einu sveitarfélögin þar sem hádegisverður hækkaði ekki milli ára.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar Grunnskóla Garðabæjar, segir að bærinn greiði grunnskólamat niður árlega um 60-70 milljónir. Þá sé forgangsmál í bæjarfélaginu að efla innra starf skólanna og í því skyni var stofnaður Þróunarsjóður grunnskóla árið 2014 sem útdeilir 30 milljónum á ári. Kennarar og aðrir starfsmenn skólanna geta sótt um. Auk þess hefur bærinn í upphafi árs ákveðið að leggja 50 milljónir aukalega til grunnskólanna vegna ýmissa verkefna.

„Garðabær hækkaði skólamat mjög lítið milli ára síðast eða um tvö prósent á meðan ýmis önnur sveitarfélög hækkuðu mun meira. Munur á krónutölu er ekki mikill t.d. milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar og sama á við um Kópavog. Garðabær leggur áherslu á hátt þjónustustig og eru börn tekin ung inn í leikskóla, leikskólinn lokar ekki á sumrin þannig að foreldrar geta valið sér tíma til að taka sumarfrí og auk þess er frjálst val um grunnskóla fyrir börn á milli grunnskóla með ólíkar áherslur,“ segir Sigríður.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×