Innlent

Í erfiðri stöðu með blindfullan kærasta í Keflavík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar. Vísir/Eyþór
Lögregla á Suðurnesjum var kölluð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun vegna ölvaðs flugfarþega. Hann var að koma frá Montreal og á leið til Parísar ásamt kærustu sinni.

Þegar þau lentu í Keflavík kvaðst hún ekki hafa haft stjórn á honum og týnt honum. Hafði maðurinn drukkið mikið um borð í vélinni að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Hann var sjáanlega ölvaður og órólegur þegar lögreglumenn höfðu tal af honum og var hann færður á lögreglustöðina í Keflavík þar sem hann var látinn sofa úr sér.

Ekki fylgir sögunni hvort kærastan hafi farið ein síns liðs til Parísar eða bíði kærastans í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×