Byrjuðu snjómokstur í húsagötum upp úr klukkan átta Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. febrúar 2017 08:25 Frá snjómokstri á höfuðborgarsvæðinu í gær. vísir/vilhelm
Byrjað var að moka húsagötur í Reykjavík núna upp úr klukkan 8 en tugir snjóruðningstækja hafa verið við snjómokstur á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fjögur í nótt eftir gríðarmikla ofankomu á suðvesturhorninu aðfaranótt sunnudags. Stofnbrautir og tengibrautir eru hins vegar færar og gengur strætó samkvæmt áætlun. Því ættu allir að geta komist til vinnu eða í skóla þrátt fyrir að vera með bílinn fastan í húsagötu að sögn Hjalta Jóhannesar Guðmundssonar, skrifstofustjóra á umhverfis-og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Ekkert snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í nótt og auðveldar það mokstur í dag en Hjalti segir allar líkur á að mokstri í húsagötum verði ekki lokið fyrr en eftir tvo til þrjá daga. „Stofnbrautir eru orðna fínar og þá erum við að vinna í að breikka og aðlaga tengigötur að stofnæðum,“ segir Hjalti í samtali við Vísi. Hann segir unnið eftir forgangi; fyrst sé byrjað á stofnbrautum, þá farið í tengigötur þeirra og loks húsagötur. Það sé gert svo að allar leiðir strætó geti til að mynda gengið samkvæmt áætlun. Hjalti biður fólk um að sýna þolinmæði í umferðinni þar sem það taki nokkra daga að klára moksturinn. Aðspurður hvað fólk geti gert til að auðvelda aðgengi snjómoksturstækja í húsagötum segir Hjalti: „Ef bílar eru fastir í götunni er best að reyan að losa þá og koma í stæði þannig að göturnar sjálfar séu sem mest lausar svo við getum sinn starfi okkar vel og skilvirkt og tækin komist um. Ef það er mikið af bílum fyrir þá er erfiðara að moka og það verður ekki eins vel gert.“Færð og aðstæður á vegum:Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum og Sandsskeiði en á Suðurlandi er all víða nokkur hálka eða snjóþekja. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Ófært er í Kjósarskarði og á Suðurstrandavegi en unnið að hreinsun.Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og snjóþekja á nokkrum útvegum.Það er snjóþekja mjög víða á Vestfjörðum og þæfingsfærð á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði en unnið að hreinsun.Á Norður- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum og éljagangur á norðaustur hluta landsins. Snjókoma er á Fjarðarheiði og Oddskarði. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.Það er að mestu greiðfært með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir á stöku stað.
Mest lesið Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Fleiri fréttir Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Sjá meira