Innlent

Snjósleðum stolið í Úlfarsárdal

Samúel Karl Ólason skrifar
Þessum snjósleðum ásamt snjósleðakerru var stolið fyrir utan Lofnarbrunn 16 í Úlfarsardal aðafaranótt föstudags.
Þessum snjósleðum ásamt snjósleðakerru var stolið fyrir utan Lofnarbrunn 16 í Úlfarsardal aðafaranótt föstudags.
Tveimur snjósleðum og kerru var stolið fyrir utan Lofnarbrunn 16 í Úlfarsárdal aðfaranótt föstudags. Sleðarnir eru af gerðinni SKI-DOO SUMMIT 800, og eru árgerð 2007 og 2013. Tjónið er metið á yfir 3 milljónir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar sleðanna.

100.000 kr. fundarlaunum er boðið hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar um hvar sleðarnir eru niðurkomnir. Viðkomandi er bent á að senda upplýsingar á bfotur@gmail.com og 661-9521. Nafnleynd og trúnaði er heitið. Einnig er hægt að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Sleðarnir eru af gerðinni SKI-DOO SUMMIT 800, og eru annarsvegar árgerð 2007 og 2013.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×