Sport

Menn að missa sig yfir fríðindunum í þessum samningi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Manny Ramirez er örugglega ánægður með nýja samninginn sinn.
Manny Ramirez er örugglega ánægður með nýja samninginn sinn. Vísir/Getty
Manny Ramirez er fyrrum leikmaður í bandarísku atvinnumannadeildinni í hafnarbolta en þrátt fyrir að vera orðinn 44 ára gamall er hann ekki hættur að skrifa undir flotta samninga.

Nýjasti samningurinn hjá kappanum er við japanska liðið Kochi Fighting Dogs í Shikoku hafnarboltadeildinni i Japan. Það er þó ekki peningarnir sem eru að vekja mesta umtalið. Sports Illustrated segir frá.

Það kom örugglega nokkrum hafnarboltaspekingum á óvart að sjá Manny Ramirez taka þetta skref en þeir hinir sömu gátu ekki annað en brosað þegar fréttist af fríðindum í samningi Manny Ramirez.

Boston Globe komst yfir samninginn og þar með urðu fríðindi Manny Ramirez opinber.

1) Hann mun hafa aðgang að Mercedes-bíl og einkabílstjóra

2) Hann ræður því hvort að hann mætir á æfingar eða ekki

3) Hann fær að gista í svítum hótelanna í útileikjum

4) Hann fær eins mikið sushi og hann vill á tímabilinu

Manny Ramirez spilaði í MLB-hafnarboltadeildinni í Bandaríkjunum frá 1993 til 2011. Hann var tólf sinnum valinn í stjörnuliðið og varð tvisvar sinnum meistari með Boston Red Sox eða 2004 og 2007. 2004 var hann valinn besti leikmaður lokaúrslitanna.

Það fylgir líka sögunni að  Manny Ramirez má hoppa í betra lið og í betri deild ef hann fær tilboð þaðan. Það er því kannski ekkert skrítið að hann hafi skrifað undir. Hverju hefur hann að tapa. Getur slappað af á milli leikja og borðað eins mikið sushi og hann vill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×