Innlent

Glowie opnar sig um einelti og kynferðisofbeldi: „Hinn aðilinn náði að stjórna mér“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Glowie
Glowie Vísir/Hanna
Söngkonan Sara Pétursdóttir, sem er betur þekkt sem Glowie, gekk í gegnum þunglyndi og erfiða reynslu í byrjun árs 2014, á svipuðum tíma og ferill hennar fór á flug. Hún vakti fyrst athygli þegar hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrir hönd  Tækniskólans með laginu Make You Feel My Love. Stjarna hennar skín skært um þessar mundir en hún gerði nýlega samning við breska útgáfurisann Columbia.

Rætt var við Glowie í þættinum Ísþjóðinni á RÚV í gær. Þar opnaði hún sig meðal annars um einelti sem hún varð fyrir í grunnskóla og kynferðislega misnotkun sem hún varð fyrir.

Var rosalega ólík öðrum

„Það verða allir einhvern tíman fyrir einhverju einelti. Það verða allir einhvern tíman fyrir einhverri stríðni. Ég held að mínar aðstæður hafi verið að ég var rosalega ólík öðrum og einhvern veginn öll grunnskólaárin þá var ég rosalega útundan og ég reyndi ekki að gera neitt mikið mál úr því, ég bara sætti mig við það. Mér fannst líka rosalega næs að vera ein stundum en það var ekkert næs heldur að aðrir vildu ekki vera með mér eða vildu ekki hafa mig með eða eitthvað svoleiðis,“ segir Glowie í viðtali við Ragnhildi Steinunni í Ísþjóðinni.

Hvernig tókst þér að vinna þig út úr þessu?

„Ég held þetta hafi bara verið það lengi að ég reyndi bara að læra það svolítið sjálf og tala um það við mömmu og pabba og eitthvað svoleiðis. Þau hjálpuðu mér rosalega mikið í gegnum það og bara að koma á réttu  hugarfari, ekki vera alltaf að tala mig niður því allir í kringum mig létu mér líða þannig. Það skiptir engu máli þótt þeim líki ekki við mig. Ef ég er ánægð með mig, þá er það það eina sem skiptir máli. Ég held það hafi komið með árunum og þroskanum og svo bara á framhaldsskólaárunum þá kom ákveðið tímabil sem var erfitt í marga staði og margar ástæður fyrir því og það er líka erfiður aldur. Þarna kikkaði inn svona unglingaskeiðið hjá mér, versti punkturinn á því.“

En hefurðu glímt við einhverja depurð eða þunglyndi?

„Já það var í kringum, þegar ég byrjaði í Tækniskólanum. Það voru alls konar ástæður fyrir því. Ég held það hafi líka verið námið, ég hef alltaf átt erfitt með námið og ég hef alltaf þurft hjálp með námið, ég hef alltaf verið eftir á þannig mér leið bara eins og ég væri heimsk. Ég var alltaf að draga sjálfa mig niður og það tók mig svolítinn tíma að átta mig á að það væri ekki rétt.“



Var tvisvar misnotuð

Glowie var ein þeirra sem tók þátt í þöggunarbyltingunni. Hún varð tvisvar fyrir kynferðislegri misnotkun en segir það hafa tekið tíma að átta sig á hvað hafi gerst.

„Þetta er bara eitthvað sem gerðist á þessum tíma sem ég var rosalega þung og átti rosalega erfitt, svona í byrjun framhaldsskólaáranna. Það voru einhver tvö skipti sem ég varð fyrir kynferðislegri misnotkun og ég áttaði mig ekkert á því fyrr en alveg töluverðum tíma seinna. Það tók svolítinn tíma að átta sig á hvað þetta var og hversu slæmt þetta var og viðurkenna að þetta væri ekki mér að kenna þó þetta hefði gerst og ég hefði kannski getað gert eitthvað í því. En aðstæðurnar voru bara þannig að hinn aðilinn náði að stjórna mér einhvern veginn og ég þorði ekki að gera neitt. Mér leið rosalega illa eftir á og síðan gerði þetta aftur og ég sagði engum frá. Af því að ég vissi ekki að þetta væri það sem þetta er, ég vissi ekki að þetta væri misnotkun,“ segir hún.

„Þetta gerðist allt á einu ári, þetta gerðist snemma árið 2014. Ég segi frá þarna þegar ég er búin að vera með kærastanum mínum í örugglega þrjá mánuði. Ég held að það hafi hjálpað mér að átta mig á „þetta er rétt. Hitt var svo rangt.“ Tilfinningin að átta sig á því, það var ógeðslegt. En svo sagði ég frá og ég sagði kærastanum mínum frá þessu fyrst og svo sagði ég mömmu og pabba.“

Hún segir að það hafi verið erfitt fyrir foreldra hennar að heyra að dóttir þeirra hafi verið misnotuð.

„Að ræða það við aðra, það var svo stórt skref að bata eftir þetta og það hjálpaði mér að átta mig á þessu og það var rosalega erfitt fyrir mömmu og pabba. Ég vissi það ekki fyrr en svolítið seinna hvað þetta var erfitt fyrir þau. Það er ekkert auðvelt að heyra allt í einu að barnið þitt varð fyrir svona ógeði þegar þú gast ekki gert neitt því þetta gerðist allt þegar mamma og pabbi voru ekki heima. Þetta var bara rosa erfitt. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×