Sport

Hafþór Júlíus sterkasti maður Evrópu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Hafþór Júlíus, eða "Fjallið", líkt og hann er oft kallaður.
Hafþór Júlíus, eða "Fjallið", líkt og hann er oft kallaður. Vísir/Getty
Hafþór Júlíus Björnsson vann í kvöld keppnina Sterkasti maður Evrópu 2017 sem fram fór í Leeds í Englandi. Hafþór hlaut 63 stig í keppninni en aðeins tvö stig skildu að fyrsta og annað sætið.

Þetta er í þriðja skiptið sem Hafþór hlýtur þennan titil. Hann varð fyrst sterkasti maður Evrópu árið 2014 og aftur ári síðar, en hann hreppti annað sætið árið 2016.

Lamaður í andliti en líður vel

Hafþór birti pistil á síðunni sinni í gær þar sem hann greindi frá því að hann væri lamaður í andliti. Hann hafi vaknað dofinn í andliti á þriðjudag og þegar líða tók á daginn hafi hægri hlið andlit hans lamast alveg.

„Vinir mínir kröfðust þess að ég færi á bráðamóttökuna til þess að láta athuga mig því þeir höfðu alvarlegar áhyggjur af því að ég væri að fá heilablóðfall. Ég eyddi dágóðum tíma á spítalanum á meðan læknarnir skoðuðu mig. Blessunarlega tilkynntu þeir mér að ég hefði ekkert að óttast,“ skrifar Hafþór. Um hafi verið að ræða vírus sem kallast Bells Palsy.

„Að öðru leyti líður mér vel og ég hlakka til að keppa um titilinn Sterkasti maður Evrópu 2017.“

To all my dear strongman fans, I have a small announcement. Last Sunday I got very sick. On Tuesday morning I woke up and the right side of my face felt kind of numb. It got worse over the course of the day and then it got completely paralysed. My friends insisted sending me to the ER to get things checked out as they were seriously worried I was having a stroke. I spent a good amount of time at the hospital as doctors ran some tests on me. Luckily I was informed there was nothing to worry about. That I have caught some virus called Bells Palsy which causes half of my face getting paralysed. It can last from a week to a few months apparently. So please keep that in mind if you come to Europe's Strongest Man tomorrow and get pictures with me that I'm not in a bad mood I just can't really smile for pictures haha! Other than that I feel good and look forward to battling it out with the guys for the Title of Europe's Strongest Man 2017 and putting on a great show for all you guys! Bring it on!

A post shared by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×