Innlent

Notuðu stolna vespu í ítrekaðar ránsferðir

Anton Egilsson skrifar
Piltarnir hafa játað verknaðinn.
Piltarnir hafa játað verknaðinn. Vísir/Pjetur
Piltar fóru ránshendi um töskugeymslu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni og létu greipar sópa. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Suðurnesjum.

Á meðal þess sem piltarnir hnupluðu voru tvær fartölvur, þrír farsímar, hleðslusnúrur, usb-lyklar og dýr merkjafatnaður. Gerðu þeir piltar sér nokkrar ferðir í geymsluna og notuðu við þær vespu sem einn þeirra hafði stolið nokkrum dögum áður.

Hafði lögreglan á Suðurnesjum hendur í hári piltanna og var ránsfengnum, sem fannst hjá þeim, komið í réttar hendur. Piltarnir hafa játað verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×