Klárar stúdentspróf með hjálp menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Nadine Guðrún Yaghi skrifar 9. maí 2017 20:00
Ung einstæð móðir, sem sótti um styrk í menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar, er nú að ljúka stúdentsprófi sem hún segir að henni hefði aldrei tekist væri það ekki fyrir sjóðinn. Það sé sjóðnum að þakka að hún sjái fram á bjarta framtíð fyrir sig og son sinn. Hún segir margar konur í sömu stöðu og hún var en umsóknum í sjóðinn hefur fjölgað. Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur hefur það hlutverk að styrkja tekjulitlar konur til menntunar. Sjóðurinn var stofnaður árið 2012 og hefur á þeim tíma styrkt yfir 100 konur til að afla sér menntunar, konur sem að öðrum kosti hefðu ekki haft tækifæri til þess. Harpa Marín Jónsdóttir er ein þeirra en hún er ung einstæð móðir. „Ég var ekki komin með neina meinntun þannig séð nema bara grunnskólamenntun. Ég fann alltaf að strax eftir að hann kom að það voru alltaf einhver takmörk. Það var tekjumark sem ég sá fyrir mér að geta ekki farið yfir. Ég gat ekki farið í vaktavinnu því það gat engin verið með barnið mitt á meðan,“ segir Harpa Marín. Harpa sá svo viðtal við unga konu í Fréttablaðinu sem hafði snúið lífi sínu við eftir að hafa fengið styrk úr sjóðnum og þannig tækifæri til að fara í nám. Harpa ákvað því að sækja um styrk sem hún fékk og núna ári síðar er hún að klára stúdentspróf af frumgreinadeild í Háskólanum í Reykjavík. „Ef ég hefði kannski bara farið menntaskólaleiðina hefði þetta tekið rosalega langan tíma og ég hefði þurft að búa við rosalega mikla fátækt í langan tíma. Það er ekki hvetjandi fyrir einn eða neinn. Maður gerir það samt sem áður og lætur reyna á sig og gerir allt fyrir börnin sín en síðan brotnar maður niður á einhverjum tíma og flosnar kannski upp úr námi,“ segir Harpa Marín. Hún segir að það séu margar ungar konur í sömu stöðu og hún var. „Og vera komin á þann stað sem þú sérð ekki fram á neitt betra í lífinu. Hvorki fyrir þig né barnið“ Harpa stefnir á að hefja nám í rekstrarverkfræði í haust. Menntunarsjóðinn reka fjórar konur í sjálfboðaliðastarfi og fer allt fé sem safnast í hann beint í styrki. Umsóknum í sjóðinn hefur fjölgað á síðustu árum en síðustu tvö ár sóttu tæplega 40 konur um styrk. Stjórn sjóðsins verður með fjáröflun næstu helgi og hvetur Harpa einstaklinga og fyrirtæki sem hafa tök á að hjálpa til við að afla fjármuna í sjóðinn. Hún segir að hún væri aldrei á þeim stað sem hún er í dag ef það væri ekki fyrir sjóðinn. „Ég held að þessi sjóður hafi verið upphafið af minni framtíð því ég get ekki sagt að það sem ég var að gera áður fyrr hafi verið einhver framtíð. Þessi sjóður kom mér í það að byrja á einhverju sem á eftir að gera gott í lífinu mínu,“ segir Harpa Marín Jónsdóttir.
Tengdar fréttir Skrefi nær draumastarfinu með góðri hjálp Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar: „Þetta er búið að bjarga lífi mínu algjörlega“ Kona á sextugsaldri, sem hafði verið djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu mestallt sitt líf, er nú við það að fá draum sinn uppfylltan og útskrifast sem viðurkenndur bókari. 4. maí 2016 22:46 Snéri við lífinu eftir þrjátíu ára fíkniefnaneyslu Kona sem náði að snúa lífi sínu við eftir þrjátíu ár í vímuefnavímuefnaneyslu segir það skipta miklu máli að fá tækifæri til að mennta sig. 9. maí 2015 19:00 Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Fleiri fréttir Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni 105 ára og syngur í kór - Sérrí og Baileys eftir æfingu Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Íbúar kalla eftir úrbótum á hættulegum gatnamótum við Sæbraut Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti Sjá meira
Skrefi nær draumastarfinu með góðri hjálp Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar: „Þetta er búið að bjarga lífi mínu algjörlega“ Kona á sextugsaldri, sem hafði verið djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu mestallt sitt líf, er nú við það að fá draum sinn uppfylltan og útskrifast sem viðurkenndur bókari. 4. maí 2016 22:46
Snéri við lífinu eftir þrjátíu ára fíkniefnaneyslu Kona sem náði að snúa lífi sínu við eftir þrjátíu ár í vímuefnavímuefnaneyslu segir það skipta miklu máli að fá tækifæri til að mennta sig. 9. maí 2015 19:00