Innlent

Brunaði eftir Reykjanesbraut og brenndi peningum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund.
Hámarkshraði á Reykjanesbraut er 90 kílómetrar á klukkustund. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum kærði vel á annan tug ökumanna fyrir hraðakstur um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Sá sem hraðast ók var á ferðinni eftir Reykjanesbraut. Hann mældist á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Brotið kostaði hann 97. 500 krónur.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×