Innlent

Vega matarleifar skólabekkjanna í Stykkishólmi

Matarleifar eru sóun.
Matarleifar eru sóun. vísir/stefán
Verkefni í mötuneyti grunnskólans í Stykkishólmi um að láta nemendur skammta sjálfum sér á diska gengur vel.

„Samhliða þessu fórum við í að skoða matarsóun. Var sá háttur hafður á að hver bekkur átti sína fötu sem þau settu matarleifar í og voru þær vigtaðar,“ segir í skýrslu skólanefndar.

„Undanfarið hefur starfsfólk mötuneytis fylgst með því hversu miklu er hent og hefur komið í ljós að það hefur aukist aftur. Það virðist því sem það þurfi nánast stöðuga athygli á málinu, annars er eins og nemendur sofni á verðinum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×