Sport

Strákarnir komnir á blað

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr leiknum í gær.
Úr leiknum í gær. mynd/Andrés Sighvatsson
Karlalandslið Íslands í blaki er komið á blað á EM smáþjóða. Íslendingar töpuðu 3-1 fyrir Lúxemborg í fyrradag en svöruðu fyrir sig með 3-0 sigri á Norður-Írlandi í gær.

Fyrsta hrina byrjaði brösuglega hjá íslenska liðinu sem var undir þangað til þeir náðu að jafna í 9-9. Íslenska liðið komst fyrst yfir í stöðunni 14-13. Þeir juku forskotið jafnt og þétt og kláruðu hrinuna 25-20.

Önnur hrina fór betur af stað og náði íslenska liðið fljótt ágætu forskoti og var yfir 8-3 í fyrsta tæknihléi og 16-10 í öðru tæknihléi. Norður Írar áttu ekki svör við sterkum leik Íslendinga sem kláruðu hrinuna 25-18.

Íslenska liðið gaf ekkert eftir í þriðju hrinu og voru 8-2 yfir í fyrsta tæknihléi og 16-7 í því öðru. Þeir gáfu ekkert eftir og unnu hrinuna með miklum yirburðum 25-9 og leikinn þar með 3-0.

Hafsteinn Valdimarsson, fyrirliði íslenska liðsins var ánægður í leikslok.

„Það tók okkur smá tíma að finna taktinn í fyrstu hrinu en eftir það var þetta frekar létt. Þeir gáfust upp í þriðju hrinu. Við ákváðum í dag að vera ákveðnari en í gær og slá boltann fastar og hætta þessum aumingjaskap,“ sagði Hafsteinn sem býst við hörkuleik gegn Kýpur í dag.

Stigahæsti leikmaður íslenska liðsins var Theódór Óskar Þorvaldsson með 11 stig og Ævarr Freyr Birgisson var með níu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×