Fótbolti

Brassarnir pökkuðu Áströlum saman

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brassarnir fagna marki í morgun.
Brassarnir fagna marki í morgun. vísir/afp
Brasilía vann auðveldan sigur á Ástralíu, 0-4, er liðin mættust í Melbourne í morgun.

Um 50 þúsund manns mættu á krikkettvöllinn í Melbourne til þess að sjá brasilísku stjörnurnar leika listir sínar og þeir fengu ágætlega fyrir peninginn.

Strax á fyrstu mínútu gaf Diego Souza tóninn með því að skora fyrsta mark leiksins. Það reyndist síðan vera eina mark fyrri hálfleiks.

Thiago Silva skoraði annað mark Brassanna á 62. mínútu og Taison afgreiddi leikinn endanlega með þriðja markinu stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Það var svo komið fram í uppbótartíma er Souza skoraði sitt annað mark og fjórða mark Brasilíumanna.

Á meðal leikmanna Brasilíu í dag voru Philippe Coutinho, David Luiz og Douglas Costa en Luiz spilaði inn á miðjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×