Fótbolti

Eiður Smári fylgdi Sverri í morgun

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Heimasíða Rostov
Sverrir Ingi Ingason fékk góðan félagsskap þegar hann samdi við FC Rostov frá Rússlandi í morgun en með í för var Eiður Smári Guðjohnsen.

„Ég er mjög ánægður fyrir hönd bæði Sverris Inga og Rostov. Þetta er frábært tækifæri fyrir hann og ég óska honum alls hins besta. Vonandi gengur honum allt í haginn,“ sagði hann í stuttu viðtali sem birtist á heimasíðu Rostov.

Sjá einnig: Sverrir Ingi farinn til Rostov í Rússlandi

Eiður Smári og Sverrir Ingi eru báðir á mála hjá sömu íslensku umboðsskrifstofunni, Total Football.

Sverrir Ingi skrifaði undir þriggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu en hann kemur til félagsins frá Granada á Spáni.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×