Sport

Alonso óánægður með fjögur ár án sigurs

Fernando Alonso fagnar heimsmeistaratitlinum 2005 í Renault litunum.
Fernando Alonso fagnar heimsmeistaratitlinum 2005 í Renault litunum. Vísir/Getty
Spænski ökuþórinn Fernando Alonso er óánægður með hvernig síðustu tímabil hjá McLaren-Honda hafa farið. Hann telur að vistaskiptin yfir frá Ferrari hafi skaðað feril hans.

Alonso var upp á sitt besta fyrir um tíu árum og vann keppni ökuþóra í Formúlu 1 tvö ár í röð, 2005 og 2006, þegar hann keppti fyrir RenaultAlonso fór til Ferrari árið 2010 og var þar sigursæll þó hann hafi ekki náð að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í þeirra herbúðum. Hann ákvað svo að yfirgefa ítalska félagið og fara yfir til McLaren-Honda árið 2014.

Mercedes hafa verið leiðandi í formúlunni undanfarin ár, og hélt Alonso að nýtt sameinað félag McLaren og Honda myndi geta veitt Mercedes einhvherja keppni. Svo fór ekki og hafa Ferrari styrkt sig í baráttunni á meðan McLaren-Honda hafa ekki náð á verðlaunapall í þrjú ár.

„Það að ná ekki sigri er slæmt fyrir ferilinn, áhugann og hamingjuna. Það er það versta við síðustu ár,“ sagði Alonso í viðtali við SkySports.

„Ég hef ekki unnið síðan 2013. Það er það versta, því þetta er ekki bara þessi síðustu þrjú ár. Á sama tíma eru aðrir ökuþórar eins og Nico Hulkenberg, Daniel Ricciardo og Max Verstappen, sem eru allir mjög hæfileikaríkir strákar og hafa bara náð tveimur eða þremur verðlaunasætum síðustu ár“

Mercedes eru mjög sterkir og ríkja yfir okkur öllum, ásamt Ferrari, svo allir hinir ökuþórarnir eru í sömu stöðu og ég“.

 


Tengdar fréttir

Alonso: Aflskorturinn bara eitt af vandamálum Honda

Fernando Alonso segir að hann hafi þurft að setja met í sparakstri í Ástralíu til að sjá fram á að bíllinn kæmist í endamark. Aflskortur er ekki eina vandamál Honda vélarinnar.

Alonso: Sjöunda sæti er eins og gjöf í dag

Lewis Hamilton náði ráspól fyrir spænska kappaksturinn sem fram fer á morgun eftir afar spennandi tímatöku. Fernando Alonso kom einna helst á óvart með sjöunda sætinu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Alonso mun ekki vinna á Renault bíl 2018

Fernando Alonso, ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 og nú Indy 500 vill aka bíl sem getur unnið keppnir á næsta ári. Renault liðið segir að bíll þess muni fyrst vera sigursæll árið 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×