Gestgjafar Hollands byrjuðu EM á heimavelli með sigri en Holland vann Noreg 1-0 í opnunarleik mótsins sem lauk í Utrecht rétt í þessu. Sigurinn var verðskuldaður og fékk hollenska liðið færi til að bæta við mörkum.
María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar, var á sínum stað í miðri vörn Noregs og lék allan leikinn.
Shanice van de Sanden var nálægt því að skora fyrsta mark mótsins eftir aðeins hálfa mínútu en Ingrid Hjelmseth í marki Noregs varði vel.
Átti Hjelmseth nokkrar góðar markvörslur í fyrri hálfleik og hélt leiknum markalausum fyrir liðsfélaga sína, staðan markalaus í hálfleik.
Van de Sanden var aftur á ferðinni á 66. mínútu þegar hún kom Hollandi yfir með góðum skalla. Kom þá fyrirgjöf frá Lieke Martens af vinstri kanti og stakk de Sanden sér fram fyrir varnarmanninn og skallaði boltann í netið.
Reyndist þetta vera eina mark leiksins en hollenska liðið var líklegra til að bæta við mörkum frekar en að norska liðinu tækist að jafna.