Erlent

Tveir handteknir eftir að stúlku var nauðgað tvisvar

Samúel Karl Ólason skrifar
Umfangmikil leit hefur staðið yfir vegna málsins.
Umfangmikil leit hefur staðið yfir vegna málsins. Vísir/EPA
Tveir hafa verið handteknir eftir að fjórtán ára stúlku var nauðgað tvisvar sinnum í Birmingham í Bretlandi. Þeir eru sagðir hafa komið að fyrri nauðguninni, en eftir hana stöðvaði stúlkan bíl og bað ökumann hans um að hjálpa sér. Eftir að hún settist upp í bíl mannsins nauðgaði hann henni einnig.

Lögreglan leitar enn ökumannsins, samkvæmt frétt Sky News. Í fyrstu sagði lögreglan að stúlkan hefði verið fimmtán ára, en það mun hafa verið rangt.



Birtar voru myndir af mönnunum sem hafa verið handteknir sem náðust á eftirlitsmyndavélar og þakkar lögreglan í Birmingham íbúum fyrir aðstoð við að finna mennina. Í tilkynningu frá lögreglunni er enn biðlað til almennings um að segja frá mannaferðum á svæðinu sem nauðgunin átti sér stað á á miðvikudagskvöldið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×