Innlent

Sagður hafa brotið gegn dreng í sturtuklefa Breiðholtslaugar

Atli Ísleifsson skrifar
Brotið á að hafa átt sér stað að morgni síðasta mánudags.
Brotið á að hafa átt sér stað að morgni síðasta mánudags. Vísir/eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú með mál til rannsóknar þar sem karlmaður er sagður hafa brotið gegn ungum dreng í sturtuklefa Breiðholtslaugar.

Þetta staðfestir Kristján Ingi Kristjánsson hjá rannsóknardeild lögreglunnar í samtali við Vísi. Hann segir rannsóknina vera á frumstigi og vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Brotið á að hafa átt sér stað að morgni mánudagsins þegar drengurinn var þar á sundnámskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×