Erlent

Annar stofnandi Costco látinn

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Brotman stofnaði Costco ásamt viðskiptafélag sínum árið 1983.
Brotman stofnaði Costco ásamt viðskiptafélag sínum árið 1983. Vísir/Eyþór
Jeffrey Brotman, annar stofnandi og stjórnarformaður Costco er látinn, 74 ára að aldri. Ekki er vitað hvert banamein hans var.

Brotman fæddist í bænum Tacoma í Washington ríki þann 27l. september árið 1942. Hann stofnaði Costco ásamt viðskiptafélaga sínum James Sinegal árið 1983.

Í yfirlýsingu frá Costco segir að hugur stjórnarinnar, framkvæmdastjórnar og starfsfólks sé hjá eiginkonu Brotman og fjölskyldu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×