Erlent

Ekið á hóp sex barna í Svíþjóð

Atli Ísleifsson skrifar
Slysið varð á vegi númer 752 við Pilbo fyrir utan Tierp.
Slysið varð á vegi númer 752 við Pilbo fyrir utan Tierp. Vísir/Getty
Ekið var á hóp barna fyrir utan Tierp, norður af Uppsölum í Svíþjóð, skömmu eftir hádegi að íslenskum tíma. SVT segir frá þessu.

Alls slösuðust sex börn, þar af tvö mjög alvarlega, og gangast þau nú undir aðgerð á sjúkrahúsi í Uppsölum.

Bílnum var ekið af rosknum manni og hafa sænskir fjölmiðlar eftir lögreglu að maðurinn sé í áfalli vegna málsins.

Slysið varð á vegi númer 752 við Pilbo fyrir utan Tierp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×