Erlent

Íslendingur vill „karlmannslausu tónlistarhátíðina“ til sín

Atli Ísleifsson skrifar
Kristján Fannar Sigurðarson starfar á ferðamálaskrifstofu Falkenberg en grínistinn Emma Knyckare varpaði fyrst fram hugmyndinni um karlmannslausa tónlistarhátíð.
Kristján Fannar Sigurðarson starfar á ferðamálaskrifstofu Falkenberg en grínistinn Emma Knyckare varpaði fyrst fram hugmyndinni um karlmannslausa tónlistarhátíð. Facebook-síða Kristjáns Fannars/Wikipedia
Kristján Fannar Sigurðarson vinnur nú að því að kanna möguleika á að fá „karlmannslausu tónlistarhátíðina“ til bæjarins  Falkenberg á vesturströnd Svíþjóðar. „Það eru enn mörg spurningamerki en mér finnst þetta áhugavert,“ segir Kristján Fannar sem starfar á ferðamálaskrifstofu Falkenberg.

Hann komst á dögunum í samband við sænska grínistann og útvarpskonuna Emma Knyckare sem varpaði fyrst fram hugmyndinni um að skipuleggja karlmannslausa tónlistarhátíð eftir tíð kynferðisbrot á tónlistarhátíðum í landinu.

Kristján segir að kynferðisbrotamálum á tónlistarhátíðinum hafi farið fjölgandi í Svíþjóð á síðustu árum. „Emma varpaði fram hugmyndinni um að skipuleggja karlmannslausa tónlistarhátíð eftir að tilkynnt var um fjölda slíkra brota á Bråvallahátíðinni fyrr í sumar. Það var mikið skrifað um þetta og mér fannst þetta áhugavert. Svo las ég einhverja grein þar sem Emma hvatti sveitarfélög sem hefðu áhuga á að halda svona hátíð til að hafa samband við sig,“ segir Kristján Fannar. Hann segir Emmu hafa verið mjög ánægða að frétta af áhuga Falkenberg.

Rætt var við Kristján Fannar í Hallands Nyheter um möguleikann á að Falkenberg haldi hátíðina.

Óljóst hvort löglegt sé að halda slíka hátíð

Kristján Fannar segist hafa fengið heimild frá bæjaryfirvöldum til að kanna málið frekar. „Emma mun funda með sínu fólki síðar í þessum mánuði og svo ætlum við vonandi að ræða saman. Við viljum alla vega heyra meira, hvað hún sjái fyrir sér fjölmenna hátíð og hvernig hún sjái hana fyrir sér. Og hvort Falkenberg geti yfir höfuð haldið slíka hátíð. Við vitum ekki hvort þau sjái fyrir sér hátíð inni í miðjum bæ, eða úti í náttúrunni. Sömuleiðis vitum við ekki hvort það sé yfir höfuð löglegt að halda svona hátíð þar sem körlum er ekki boðið, en það verður kannað.“

Tilkynnt var um 22 líkamsárásir og fjórar nauðganir á Bråvallahátíðinni í sumar.Vísir/EPA
Þar til allir karlmenn læri að haga sér

Knyckare varpaði fyrst fram hugmyndinni á Twitter eftir að fréttir bárust um að tilkynnt hafi verið um 22 líkamsárásir og fjórar nauðganir á Bråvalla-hátíðinni. „Hvað finnst ykkur um við hendum upp svakalegri hátíð þar sem aðrir en karlmenn eru velkomnir og sem við höldum gangandi þar til að ALLIR karlmenn læri hvernig eigi að haga sér?“ sagði Knyckare.

Í viðtali við Dagens Nyheter sagði Emma að viðbrögðin hafi ekki látið á sér standa þar sem nærri þúsund manns hafi boðist til að hjálpa til. „Hverjir eru það sem nauðga? Jú, karlmenn. En ef við skipuleggjum tónlistarhátíð þar sem þeir mega ekki koma? Það var þannig sem ég hugsaði. Mér finnst það hræðilegt að hálf þjóðin skuli finna fyrir óöryggi. Þannig að þegar á næsta ári verður annar möguleiki í boði: Rokkhátíð þar sem stelpur geta fundið fyrir öryggi,“ sagði Knyckare.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×